Í hnotskurn

Tegund lausnar Um lausnina
Greiðslujöfnunarleið
  • Greiðslubyrði tekur mið af greiðslujöfnunarvísitölu*.
  • Lánstíminn getur lengst, en aldrei meira en um þrjú ár.
  • Skilyrði er að lán sé í skilum til að fara í greiðslujöfnun.
  • Hægt er að segja sig frá greiðslujöfnun hvenær sem er.
  • Lengri lánstími felur í sér hærri kostnað í formi vaxta og verðbóta.
Lenging lána
  • Léttari greiðslubyrði.
  • Lengri lánstími felur í sér hærri kostnað í formi vaxta og verðbóta.
Frysting vaxta og/eða afborgunarhluta
  • Einungis í boði ef aðrar lausnir duga ekki til
  • Skilyrði að greiðslugeta lántaka batni að frystingatíma loknum.

Greiðslujöfnunarleið

Regluleg greiðslubyrði er tengd greiðslujöfnunarvísitölu* og lækkar og hækkar í takt við hana. Vísitalan tekur mið af þróun launa og atvinnustigs og er gefin út mánaðarlega af Hagstofu Íslands. Lækki vísitalan hefur það áhrif á greiðslubyrði til lækkunar og öfugt ef hún hækkar. Sá munur sem myndast við þessa aðlögun á greiðslubyrði fer á svonefndan greiðslujöfnunarreikning og bætist við höfuðstól lánsins að lánstíma loknum og lengir hann um sem því nemur, þó ekki lengur en þrjú ár. Ef eitthvað stendur eftir að þremur árum liðnum verður það afskrifað.

* Greiðslujöfnunarvísitala er reiknuð og birt á vef Hagstofu Íslands

Lenging lána

Þegar lán eru komin í vanskil getur verið fýsilegt að lengja í viðkomandi láni, sem felur yfirleitt í sér fjölgun á gjalddögum þess. Með þessu móti er dregið úr mánaðarlegri greiðslubyrði. Markmiðið með lengingu lána er að staða lántakans eftir breytingu verði viðráðanlegri til lengri tíma litið.

Frysting vaxta og/eða afborgunarhluta

Þegar um er að ræða greiðsluerfiðleika þar sem aðrar leiðir duga ekki til er mögulegt að frysta vaxta og/eða afborgunarhluta lána.  Þetta er þó einungis gert ef greiðslugeta lántaka verði betri til lengri tíma litið að frystingartímabili loknu.

Ráðgjafar Byrs veita þér aðstoð og upplýsingar um lausnir vegna verðtryggðra lána. Hægt er að hafa samband við ráðgjafa okkar í síma 575 4000, með því að senda okkur fyrirspurn eða með því að koma í næsta útibú okkar.

Stillingar