Hægt er að taka allt að 5.000.000 kr. út af viðbótarlífeyrissparnaði. Útborgunin fer fram í jöfnum greiðslum á 12 mánuðum, 416.667 kr. á mánuði. Ef sótt er um lægri upphæð greiðist hún út á hlutfallslega styttri tíma. Hægt er að sækja um fyrirframgreiðslu frá og með 5. janúar 2011.
Farðu vandlega yfir málið áður en þú tekur ákvörðun
- Viðbótarlífeyrissparnaðurinn er ekki aðfarahæfur, sem þýðir að ekki er hægt að ganga að honum við gjaldþrot. Þessi vernd er ekki lengur til staðar á þeirri séreign sem greidd hefur verið úr sjóðnum
- Fyrirframgreiðslan lækkar þá fjárhæð sem annars væri hægt að taka út við 60 ára aldur eða starfslok
- Viðbótarlífeyrissparnaður er undanþeginn fjármagnstekjuskatti sem gerir hann að skattalega hagkvæmum sparnaði
- Þessum sparnaði er ætlað að auka möguleika þína á óbreyttum lífskjörum á efri árum, en lögbundinn lífeyrissparnaður nemur að jafnaði um 2/3 af þeim mánaðarlaunum sem þú hefur við starfslok.
- Tekið verður á móti umsóknum til 1. apríl 2011.
Stattu vörð um fjárhagslega framtíð þína
Mikilvægt er að átta sig á því að 5.000.000 kr. geta ávaxtast töluvert yfir langan tíma. Ef við tökum dæmi um einstakling sem er 35 ára, þá verða 5 milljón kr. viðbótarlífeyrissparnaður hjá honum orðin að rúmum 12.875.414 kr. við 67 ára aldur. Hér er miðað við 3% ávöxtun á ársgrundvelli. Það getur því margborgað sig að bíða ef þú átt kost á því. Reiknaðu hver þinn sparnaður gæti verið við starfslok.
Við ákveðnar aðstæður getur fyrirframgreiðsla verið rétta úrræðið.
- Ef einstaklingur hefur litlar sem engar tekjur getur úttektin hjálpað tímabundið
- Ef einstaklingur er með óhagstæðar skuldir sem bera háa vexti getur borgað sig að taka út viðbótarlífeyrissparnaðinn og leggja inn á höfuðstól lána eða greiða niður nýtta yfirdráttarheimild. Með því er hægt að minnka skuldir og lækka greiðslubyrði.
Mikilvægt er að fara vel yfir það með ráðgjafa hvort þetta sé rétta lausnin fyrir þig eða hvort aðrar lausnir Byrs henti þér betur. Hægt er að hafa samband við ráðgjafa okkar í síma 575 4000, með því að senda okkur fyrirspurn eða með því að koma í næsta útibú okkar.
