Platínumþjónusta
Í Platínumþjónustu Byrs nýtur þú fjárhagslegs ávinnings af ýmsu tagi. Þar að auki færðu ýmis sértilboð hjá samstarfsaðilum. Kynntu þér kosti Platinum Byrs og hver þinn ávinningur er í þjónustunni.
Helstu kostir
- Veltutengdur afsláttur af árgjaldi Platínumkreditkorts
- Frítt árgjald Platínumdebetkorts
- 50% afsláttur af lántökugjöldum skammtímalána*
- Afsláttur við kaup í sjóðum Byrs
- Rýmri yfirdráttarheimild
- Betri yfirsýn í Heimabankanum
- Frí netgreiðsluþjónusta
- Sjálfvirkt heimilisbókhald í Heimabankanum
- Ýmis sértilboð
- Sérkjör á tryggingum hjá Verði
* Háð útlánareglum Byrs
Félagar í Platínumþjónustu sem eru 60 ára og eldri njóta aukaávinnings
- Frítt árgjald í Greiðsluþjónustu
Nánari upplýsingar
- Þarf að vera fjárráða (einstaklingar 18 ára og eldri)
- Fasteignareigandi
- Ekki á vanskila- og/eða lokanaskrá
- Velta á ári hærri en 6.000.000 kr.
- Innlán að lágmarki 1.000.000 kr. (fyrir utan viðbótarlífeyrissparnað)
Til að njóta kosta Vildarþjónustunnar þarft þú að vera með launareikning, heimabanka og kreditkort.
Viðskiptavinir í Platinumþjónustu fá 200 fríar debetkortafærslur á ári
Afsláttur af lántökugjöldum til skemmri tíma en 60 mánaða (5 ára) getur munað töluverðum upphæðum. Útlán eru háð lánareglum Byrs.
*Íbúðalán, erlend lán, víxlar og afborgunarsamningar falla ekki undir þessi kjör.
25% afsláttur af þóknun við kaup í sjóðum Byrs
Viðskiptavinir í Vildarþjónustunni greiða ekkert fyrir debetkortið.
Viðskiptavinir í Platínumþjónustu geta valið um söfnun vildarpunkta hjá Vildarklúbbi Icelandair eða uppsöfnun í inneign á MasterCard ferðaávísun. Þar safnar þú 9 kr á hverjar 1.000 kr sem þú veltir innanlands.
Með því að framvísa debet- eða kreditkorti frá Byr færð þú 2 fyrir 1 í bíó á mánudögum í Sambíóunum
Ef veltan á platínumkreditkorti er 2.000.000 kr. á ári eða hærri fær korthafi í Vildarþjónustu Byrs 50% afslátt af árgjaldi kortsins. Korthafi fær 100% afslátt af árgjaldinu ef veltan fer yfir 3.000.000 kr. á ári.
Vörður býður viðskiptavinum Byrs sem eru í Vildarþjónustu sérkjör á tryggingar.
- Að lágmarki 15% grunnafsláttur til viðskiptavina í Grunni *
- Að lágmarki 5% auka afsláttur af öllum tryggingum auk 10.000 króna afsláttar af heildariðgjöldum fyrsta árið til viðskiptavina í Grunni.
- 10% tjónleysisafslátt
* Til að komast í Grunn þurfa viðskiptavinir að vera með lögboðna ökutækjatryggingu, fjölskyldutryggingu og einhverja þriðju tryggingu svo sem kaskótryggingu eða brunatryggingu fasteignar.
Viðskiptavinir í Platínumþjónustu geta fengið í formi skuldabréfs eða yfirdráttarheimildar lán án ábyrgðarmanna sem samsvarar allt að þreföldum mánaðarlaunum (útborguð laun) en aldrei þó meira en 2.000.000 kr. Útlán eru háð lánareglum Byrs.
