Fréttir
Verklagsreglur um úrlausn skuldavanda fyrirtækja
Samþykktar hafa verið á vettvangi Samtaka fjármálafyrirtækja sameiginlegar reglur fjármálafyrirtækja um fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja. Reglurnar hafa hlotið samþykki Fjármálaeftirlitsins með bréfi 2. mars 2010 eins og kveðið er á um í lögum nr. 107/2009.
Meira | Skrifað þann 04. mars 2010
Sparisjóðirnir efstir í 11 sinn
Þann 23. febrúar 2010, voru kynntar niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar en þetta er ellefta árið sem ánægja viðskiptavina íslenskra fyrirtækja er mæld með þessum hætti. Að þessu sinni voru 25 fyrirtæki í 5 atvinnugreinum mæld. Niðurstöður byggja á svörum rúmlega 6000 manns eða um 250 viðskiptavina hvers fyrirtækis.
Meira | Skrifað þann 26. febrúar 2010
Skuldabréfasjóður Byrs
Eins og fram hefur komið í fréttum skoðar Byr sparisjóður nú möguleika sem þykja vænlegir til aukinnar hagræðingar í rekstri sparisjóðsins. Í fjölmiðlum var tilgreint að til stæði að loka verðbréfasviði sparisjóðsins og sjóðir á vegum rekstrarfélags sparisjóðsins yrðu seldir til Íslenskra verðbréfa hf. Engin formleg ákvörðun hefur verið tekin í þessum efnum á vegum sparisjóðsins.
Meira | Skrifað þann 24. febrúar 2010
Byr sparisjóður sameinar útibú
Byr sparisjóður mun sameina rekstur útibúsins í Garðabæ við útibúið á Digranesvegi 1 í Kópavogi hinn 18. febrúar nk. Er þetta liður í hagræðingaraðgerðum sparisjóðsins. Lögð verður áhersla á að sameiningin hafi sem minnstu óþægindi í för með sér fyrir viðskiptavini.
Meira | Skrifað þann 12. febrúar 2010
Auðvelt að senda peninga til Haiti
Margir vilja aðstoða nauðstadda á Haiti með því að senda þangað peninga. Sparisjóðirnir bjóða upp á einfalda og örugga leið til að tryggja að peningasendingar komist til skila.
Meira | Skrifað þann 02. febrúar 2010
Byr afhendir skólastyrki
Fyrri úthlutun skólastyrkja Byrs sparisjóðs á þessu ári fór fram í gær og fengu tveir háskólanemar 200.000 króna styrki hvor og fjórir framhaldsskólanemar 25.000 króna styrki. Allir námsmenn hjá Byr geta sótt um skólastyrki, sem eru veittir tvisvar á ári, en í þetta sinn bárust hátt í 300 umsóknir.
Meira | Skrifað þann 29. janúar 2010
Sjóðir Byrs með mesta ávöxtun
Skuldabréfasjóður Byrs skilaði 17% nafnávöxtun á síðasta ári. Skuldabréfasjóðurinn fjárfestir eingöngu í ríkistryggðum skuldabréfum. Almennt skiluðu innlendir ríkisskuldabréfasjóðir góðri ávöxtun árið 2009 en Skuldabréfasjóður Byrs var með besta árangur þeirra sjóða sem eingöngu fjárfesta í innlendum ríkistryggðum skuldabréfum og víxlum.
Meira | Skrifað þann 22. janúar 2010
Nýjar samþykktir fyrir Byr sparisjóð
Í júlí 2009 tóku gildi lög nr. 76/2009 um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002. Með þessum lögum voru gerðar umtalsverðar breytingar á VIII. kafla laganna, en í honum er að finna sérákvæði laganna um sparisjóði. Í sumum tilvikum er um grundvallarbreytingar að ræða en aðrar eru minniháttar. Hins vegar eiga þær það flestar sameiginlegt að vera teknar upp í samþykktir Byrs sparisjóðs, með einum eða öðrum hætti. Nauðsynlegt var því að laga samþykktirnar að nýju og breyttu lagaumhverfi sparisjóðsins.
Meira | Skrifað þann 20. janúar 2010
Opnar umræður á stofnfjáreigendafundi Byrs
Góð mæting var á stofnfjárfundi 15. janúar sl. Þar fóru fram opnar umræður sem endurspegluðu mikla samstöðu stofnfjáreigenda. Var meðal annars samþykkt að fá óháðan lögmann til að meta hvort að grundvöllur sé til málshöfðunar á hendur aðilum er tengjast lánveitingu Byrs til Exeter Holdings. Samtök stofnfjáreigenda Byrs voru stofnuð strax á eftir fundinn.
Meira | Skrifað þann 17. janúar 2010
Viðtal við sparisjóðsstjóra Byrs í Viðskiptablaðinu
Fimmtudaginn 14. janúar síðastliðinn birtist viðtal við Jón Finnbogason, sparisjóðsstjóra Byrs í Viðskiptablaðinu. Viðtalið má lesa í heild sinni hér fyrir neðan.
Meira | Skrifað þann 15. janúar 2010
