Fréttir
Nýjar samþykktir fyrir Byr sparisjóð
Skrifað þann 20. janúar 2010
Í júlí 2009 tóku gildi lög nr. 76/2009 um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002. Með þessum lögum voru gerðar umtalsverðar breytingar á VIII. kafla laganna, en í honum er að finna sérákvæði laganna um sparisjóði. Í sumum tilvikum er um grundvallarbreytingar að ræða en aðrar eru minniháttar. Hins vegar eiga þær það flestar sameiginlegt að vera teknar upp í samþykktir Byrs sparisjóðs, með einum eða öðrum hætti. Nauðsynlegt var því að laga samþykktirnar að nýju og breyttu lagaumhverfi sparisjóðsins.
Á stofnfjáreigendafundi Byrs 15. janúar sl. voru lagðar fram tillögur að breytingum á samþykktum fyrir sparisjóðinn í 18 liðum. Voru þær allar samþykktar nema tillaga um niðurfellingu á takmörkunum á hámarksatkvæðavægi hvers einstaks stofnfjáreiganda við 5% af heildaratkvæðamagni í sjóðnum , sbr. 5. gr. samþykktanna.
