Fréttir

Sjóðir Byrs með mesta ávöxtun

Skrifað þann 22. janúar 2010

Skuldabréfasjóður Byrs skilaði 17% nafnávöxtun á síðasta ári. Skuldabréfasjóðurinn fjárfestir eingöngu í ríkistryggðum skuldabréfum. Almennt skiluðu innlendir ríkisskuldabréfasjóðir góðri ávöxtun árið 2009 en Skuldabréfasjóður Byrs var með besta árangur þeirra sjóða sem eingöngu fjárfesta í innlendum ríkistryggðum skuldabréfum og víxlum. Þetta kemur fram á vefsíðunni sjodir.is sem starfrækir óháðan samanburð á ávöxtun verðbréfasjóða.

Allar nánari upplýsingar um sjóði Byrs er að finna á heimasíðu Byrs sparisjóðs eða í síma 575 4000.

Nánari upplýsingar

Til baka

Stillingar