Þann 2. júlí 2010 úrskurðaði héraðsdómur Reykjavíkur að Byr sparisjóður (kt. 610269-2229) skyldi tekinn til slitameðferðar. Var það gert að beiðni bráðabirgðastjórnar sparisjóðsins. Samkvæmt 4. mgr. 101. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, samanber 5. gr. laga nr. 44/2009 um breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki, skipaði héraðsdómur Reykjavíkur þriggja manna slitastjórn.

Slitastjórn Byrs sparisjóðs hefur samið við Íslandsbanka um sölu á eignarhluta slitastjórnar í Byr hf. Samkomulagið var undirritað 12. júlí 2011 og er það háð samþykki Samkeppniseftirlits og Fjármálaeftirlits. Sjá nánar hér.

Slitastjórn Byrs sparisjóðs

  • Eva Bryndís Helgadóttir, hrl.
  • Ágúst Kristinsson, löggiltur endurskoðandi.
  • Árni Ármann Árnason, hrl.

Meðal verka slitastjórnar er að annast meðferð krafna á hendur sparisjóðnum á meðan á slitameðferð stendur.

Eyðublöð, leiðbeiningar um útfyllingu á þeim og aðrar upplýsingar um meðferð krafna er einnig að finna á enska hluta síðunnar.

Nánari upplýsingar

Disclaimer: This information is for informational purposes only and shall not be made legally binding towards Byr Savings Bank, its Winding-up Committee of Byr hf. Please note the terms of the general disclaimer governing use of this website and the information contained on the website.

Stillingar