Fréttir
Fréttir af fjármálamarkaði
Skrifað þann 08. febrúar 2010
Í síðustu viku héldu allir verðtryggðu flokkarnir áfram að lækka, mest lækkaði lengsti flokkurinn eða um 0,84%. Löngu óverðtryggðu bréfin hækkuðu hins vegar nokkuð, en mest hækkaði RIKB 19 eða um 0,78%. Undanfarna daga hefur veltan með skuldabréf verið frekar lítil og er það til marks um þá óvissu sem ríkir á markaðinum, þ.e. varðandi lyktir Icesave, frekari stýrivaxtalækkun, verðbólguhorfur svo eitthvað sé nefnt.
Lækkanir á erlendum hlutabréfamörkuðum héldu áfram í síðustu viku. Helsta skýringin á lækkunum er hræðsla fjárfesta við miklar skuldir þjóðríkja sem hafa hækkað mjög hratt í kjölfar ýmissa stöðugleikaaðgeraða sem þau hafa gripið til í kjölfar lánakrísunnar sem reið yfir.
Nokkuð góð þátttaka var í útboði sem Lánamál ríkisins héldu síðstliðinn föstudag. Tveir flokkar voru boðnir til kaups, RIKB 11 og RIKB 25. Lengri flokkurinn fékk mjög góðar undirtektir og var tilboðum fyrir 6,7 milljarða tekið í hann. Heildarstærð RIKB25 er nú orðinn um 70 milljarðar. Frekar illa hefur gengið að byggja upp RIKB 11 og er hann lang minnstur allra ríkisbréfaflokkana eða um 11 milljarðar eftir útboðið á föstudag. Það hljóta að teljast jákvæð tíðindi fyrir ríkissjóð hversu góðar undirtektir RIKB 25 hefur fengið meðal fjárfesta, en ríkissjóður hefur lagt á það áherslu að lengja í endurgreiðsluferli skulda. Einnig er þetta mjög jákvætt fyrir lánastofnanir þar sem þær geta nú boðið langtíma óverðtryggð lán á föstum vöxtum, en uppbygging á löngum óverðtryggðum vaxtaferli er ein af forsendum fyrir slíku.
