Barnaþjónusta
Halló! Ég heiti Bjössi og ætla að segja ykkur aðeins frá barnaþjónustunni okkar hjá Byr. Þjónustan er fyrir alla átta ára krakka og yngri, sem eiga sparnaðarreikning hjá Byr og hafa gaman af að spara.
Hlutverk mitt er að hvetja krakkana með ráðum og dáð til þess að spara. Markmiðið er fyrst og fremst að þau læri að fara vel með peningana og tileinki sér smám saman gildi sparnaðar, í góðu samstarfi við mömmu og pabba, afa og ömmu eða aðra nána ættingja og vini.
Sparnaður er gömul dyggð og ný. Með því að tileinka okkur gildi þess að spara, lærum við smám saman að umgangast vel ekki aðeins peningana okkar vel, heldur einnig önnur verðmæti. Það finnst mér ekki síður mikilvægt
Bjössi mælir með Framtíðarsjóði fyrir öll börn
- Ber hæstu raunvexti sem Byr býður
- Engin lágmarksupphæð á innborgunum
- Verðtryggður
- Stofnaður á börn til 15 ára aldurs
- Bundinn til 18 ára aldurs
- Óbreytt kjör þótt 18 ára aldri sé náð
Ég sé síðan um að halda uppi fjörinu í sparnaðinum með alls konar glaðningi og uppátækjum, eins og mér einum er lagið. Mér finnst einnig gaman að vera í fjárhagslegri heilsurækt, með alvöru vaxtarækt og öðru skemmtilegu sem byggir upp hraustan fjárhag.
Bæ. Bjössi
Hér á síðunni er að finna ýmiss fjármálahugtök sem ég útskýri betur í spariorðabókinni minni.
Viltu skoða nýja bæklinginn minn? (PDF skjal 182KB)
