Best af öllu er að eignast sparibauk eins og mig, ef þig langar að spara. Munum að leggja alltaf til hliðar hluta af þeim peningum sem við eignumst, til dæmis þegar við fáum peninga i afmælisgjöf.
Mikilvægar staðreyndir
Vaxtakjör Framtíðarsjóðsins haldast áfram óbreytt þótt 18 ára aldri sé náð. Fyrir vikið tapast engin ávöxtun, þótt það gleymist að færa innistæðuna á annan sparnaðarreikning þegar 18 ára aldrinum er náð.
Vaxtakjör Framtíðarsjóðsins eru þau bestu sem bjóðast hjá Byr hverju sinni og þess vegna er um afar hagkvæman kost að ræða fyrir reglubundinn langtímasparnað hjá ungum sparifjáreigendum, eins og sjá má á meðfylgjandi dæmum:
Dæmi 1
Þú leggur inn með barninu þínu 1.000 kr. á mánuði.
Við 18 ára aldur er inneign barnsins 867.024 kr.
Dæmi 2
Þú leggur inn með barninu þínu 3.000 kr. á mánuði.
Við 18 ára aldur er inneign barnsins orðin 2.601.073 kr.
Í báðum dæmum er miðað við 15,21% nafnávöxtun ársins 2009 og reglubundinn sparnað frá 1 til 18 ára aldurs.
