Sparnaður ófjárráða barna

Almenn atriði

Ákvarðanir um fjármál eru mikilvægur þáttur í lífi fólks á öllum aldri. Í eftirfarandi texta er leitast við að varpa ljósi á þær reglur sem gilda um meðferð fjármuna ófjárráða einstaklinga, einkum barna. Umfjöllunin er þó langt frá því að vera tæmandi.

Lögræði og lögráðamenn barna

Um lögræði er fjallað í lögræðislögum, nr. 71/1997. Einstaklingar verða lögráða 18 ára en þá öðlast þeir bæði sjálfræði og fjárræði. Börn eru því ófjárráða til 18 ára aldurs.

Lögráðamenn fara með fjármál barns fram að 18 ára aldri. Lögráðamenn eru foreldrar barns (kynforeldrar eða kjörforeldrar) sem fara með forsjá þess eða aðrir einstaklingar sem hefur verið falin forsjá barns samkvæmt barnalögum, nr. 76/2003, með formlegum samningi staðfestum af sýslumanni.

Við skilnað eða samvistarslit foreldra er tekin ákvörðun um hvort þeirra skuli fara með forsjá barna þeirra eða að þau skuli fara sameiginlega með forsjá. Ákvörðunin byggist á samningi foreldra sem staðfestur er af sýslumanni eða með úrskurði dómstóla.

Fjármunir barna

Í lögræðislögum eru fjármunir barna flokkaðir. Mismunandi reglur gilda um meðferð fjármuna eftir flokkum:

  • Sjálfsaflafé er það fé sem barnið hefur sjálft unnið sér inn.
  • Gjafafé er það fé sem barninu hefur verið gefið.
  • Annað fé en að ofan greinir. Sem dæmi má nefna arf og alls kyns bótagreiðslur.

Ráðstöfun fjármuna barna

Samkvæmt lögræðislögum ræður ófjárráða einstaklingur ekki yfir fé sínum nema lög kveði á um annað. Lögráðamaður ræður því yfir fjármunum ófjárráða einstaklings. Umráð lögráðamanns ná þó hvorki til eftirtalins fjár né vaxta og verðbóta af því:

  • Þess fjár sem barnið hefur sjálft unnið sér inn (sjálfsaflafé)
  • Þess fjár sem barninu hefur verið gefið án skilyrða (gjafafé)
  • Þess fjár sem lögráðamaður hefur látið barnið hafa til ráðstöfunar

Fjármunir barns skulu ávaxtaðir eins og best gerist á hverjum tíma. Lögráðamanni ber skylda til að fræða barn og taka ákvarðanir um fjármál þess með hagsmuni þess að leiðarljósi. Við ráðstöfun fjármuna barns skal haft samráð við barnið eftir því sem kostur er miðað við þroska þess.

Skaðabótaábyrgð lögráðamanns

Lögráðamaður ber ábyrgð á þeim fjármunum barns sem hann hefur umráðarétt yfir samkvæmt lögræðislögum. Lögráðamaður skal ávallt halda fjármunum barns aðgreindum frá eigin fjármunum. Misfari lögráðamaður með fé barns ber hann bótaábyrgð gagnvart barninu.

Eftirlit yfirlögráðanda og skyldur lögráðamanna gagnvart yfirlögráðanda

Sýslumenn eru yfirlögráðendur í sínu umdæmi. Hlutverk þeirra felst m.a. í að hafa eftirlit með ráðstöfunum lögráðamanna með fjármuni barna. Samþykki yfirlögráðanda þarf til ýmissa ráðstafana sem varða fjármuni ófjárráða einstaklinga. Sem dæmi má nefna (ekki er um tæmandi upptalningu að ræða):

  • Lögráðamanni er skylt að hafa samráð við yfirlögráðanda varðandi varðveislu og ávöxtun þeirra fjármuna/eigna ófjárráða einstaklings sem eru að verðmæti yfir 500.000 kr.
  • Samþykki yfirlögráðanda þarf til þess að ganga á eignir ófjárráða einstaklings til greiðslu kostnaðar af framfærslu hans, námi eða öðru.
  • Óheimilt er að setja fjármuni ófjárráða einstaklings sem tryggingu fyrir skuldbindingu eða láta ófjárráða einstakling gangast í ábyrgð eða setja tryggingu fyrir þriðja aðila. Yfirlögráðandi getur þó veitt undanþágu þegar sérstaklega stendur á vegna hagsmuna hins ófjárráða.
  • Óheimilt er að lána fé ófjárráða einstaklings. Þó getur yfirlögráðandi heimilað undantekningu við vissar aðstæður gegn tryggu veði í fasteign.
  • Samþykki yfirlögráðanda þarf til þess að skuldbinda ófjárráða einstakling vegna kaupa eða sölu ýmissa eigna hans, t.d. fasteigna og skráningarskyldra ökutækja. Sama gildir ef ófjárráða einstaklingi eru gefnar slíkar eignir.

Rísi ágreiningur um meðferð fjármuna ófjárráða einstaklings má bera þann ágreining undir yfirlögráðanda.

Skylt er að fylgja fyrirmælum lögráðanda varðandi fjármuni ófjárráða einstaklings.

Innlánsreikningar barna

Innlánsreikningur, sem geymir fjármuni barns, skal skráður á nafn barnsins. Nafn lögráðamanns skal þó ávallt koma fram á umsókn um stofnun reiknings.

Stofnun innlánsreiknings barns

Barn, sem er 11 ára eða yngra, getur ekki stofnað bankareikning án samþykkis lögráðamanns. Frá og með 12 ára aldri getur barn sjálft stofnað innlánsreikning með sjálfsaflafé eða gjafafé sínu. Lögráðamaður, gefandi eða atvinnurekandi hefur sömu heimild til stofnunar slíkra reikninga. Þegar um annað fé er að ræða en sjálfsaflafé eða gjafafé skal lögráðamaður undirrita umsókn um stofnun innlánsreikings.

Úttektarheimildir

Sjálfsaflafé og gjafafé gefið án skilyrða:

  • Barnið eitt hefur úttektarheimild.

Gjafafé gefið með skilyrðum:

  • Gefandi getur við stofnun innlánsreiknings barns sett fyrirmæli í umsókn um stofnun reikningsins um að einungis lögráðamaður eða lögráðamaður auk barns hafi úttektarheimild. Önnur skilyrði er gefanda ekki heimilt að setja.

Annað fé:

  • Lögráðamaður einn hefur úttektarheimild.

Upplýsingagjöf

Barnið og lögráðamaður þess hafa heimild til að fá upplýsingar um innlánsreikning barnsins, hvort sem um sjálfsaflafé, gjafafé eða annað fé er að ræða. Ekki er heimilt að gefa öðrum upplýsingar um innlánsreikninginn.

Breyting á forsjá

Nauðsynlegt er að tilkynna breytingu á forsjá barns til þess fjáramálafyrirtækis sem barnið er með reikning.

Ófjárráða verður fjárráða

Þegar einstaklingur verður 18 ára að aldri fær hann yfirráð yfir fjármunum sínum. Bankareikningur, sem lögráðamaður hafði áður yfirráð yfir, fellur þá undir yfirráð reikningseigandans.

Önnur fjármálaviðskipti en að framan greinir

Um önnur fjármálaviðskipti barna en að framan greinir, svo sem verðbréfaviðskipti, gilda sambærilegar reglur eftir því sem við getur átt.

Lögræðislög, nr. 71/1997 eru aðgengileg á netinu.

Stillingar