Öllum einstaklingum sem tekið hafa íbúðalán (fasteignalán) í erlendri mynt með veði í íbúðahúsnæði stendur til boða að greiða 5.000 kr. fasta mánaðarlega greiðslu af hverri milljón af upprunalegum höfuðstól. Um er að ræða tímabundið úrræði sem gildir til 31.03.2011 eða þar til skorið verður úr um réttarágreining fyrir dómstólum.
Helstu upplýsingar
- Fyrir einstaklinga með íbúðalán (fasteignalán) í erlendri mynt með veði í íbúðahúsnæði
- Lántakandi greiðir 5.000 kr. af hverri milljón af upprunalegum höfuðstól láns
- Greiðslubyrði af 12.000.000 kr. láni verður 60.000 kr. á mánuði
- Skilyrði er að lánstími sé lengri en 5 ár og að afborganir séu reglulegar
- Enginn aukakostnaður
Ef lán er í vanskilum þarf að semja um þau áður en úrræðið tekur gildi. Umsóknin er einungis afgreidd ef skilyrði úrræðis eru uppfyllt.
