Almenn úrræði
Nýlega voru samþykkt á Alþingi lög um sjálfvirka beitingu greiðslujöfnunar á öll verðtryggð lán sem tryggð eru með veði í fasteignum hér á landi. Lán sem voru í skilum og ekki í frystingu fóru sjálfkrafa í greiðslujöfnun frá og með 1. desember. Hægt er að segja upp greiðslujöfnun í næsta útibúi Byrs hvenær sem er, í síðasta lagi 10 dögum fyrir þann gjalddaga sem lántaki vill að uppsögn eigi sér stað. Jafnframt hefur verið skrifað undir samkomulag um beitingu greiðslujöfnunar á gengistryggð fasteignaveðlán að því gefnu að í það minnsta fimm ár séu eftir af lánstíma. Sækja þarf um slíka greiðslujöfnun í næsta útibúi Byrs.
Greiðslujöfnun virkar þannig að greiðslubyrði tekur mið af greiðslujöfnunarvísitölu í stað vísitölu neysluverðs. Höfuðstóll lánsins er þó áfram bundinn vísitölu neysluverðs. Við þetta skapast ákveðinn mismunur sem fer á greiðslujöfnunarreikning. Reikningurinn er gerður upp við lok lánstíma og lengir lánið um það sem því nemur, þó aldrei lengur en þrjú ár. Það sem stendur eftir að þremur árum liðnum er afskrifað.
Helstu kostir
- Léttari greiðslubyrði á erfiðum tímum í efnahagslífi Íslendinga
- Kostar ekkert og er hægt að segja henni upp hvenær sem er
Helstu ókostir
- Möguleiki á að lán lengist, þó aldrei lengur en sem nemur þremur árum af upprunalegum lánstíma
- Lenging lánstíma felur í sér hærri kostnað í formi vaxta auk verðbóta ef um verðtryggt lán er að ræða
- Eignamyndun í húsnæði getur orðið hægari til skamms tíma
Upplýsingar um almenn úrræði
Kynntu þér nánar greiðslujöfnun verðtryggðra og gengistryggðra lána hér að neðan. Ráðgjafar Byrs veita þér einnig aðstoð og upplýsingar um greiðslujöfnun. Hægt er að hafa samband við ráðgjafa okkar í síma 575 4000, með því að senda okkur fyrirspurn eða með því að koma í næsta útibú okkar.
