Í hnotskurn
| Tegund lausnar | Um lausnina |
|---|---|
| Greiðslujöfnunarleið |
|
| Fastgreiðsluleið |
|
| 5.0000 kr. fastar greiðslur erlendra íbúðalána |
|
| Lenging lána |
|
| Frysting vaxta og/eða afborgunarhluta |
|
Greiðslujöfnunarleið
Með greiðslujöfnun verður greiðslujöfnun sú sama í íslenskum krónum og hún var á gjalddaga 2. maí 2008. Greiðsla er svo tengd greiðslujöfnunarvísitölu*, sem tekur mið af þróun launa og atvinnustigs og er gefin út mánaðarlega af Hagstofu Íslands. Lækki vísitalan hefur það áhrif á greiðslubyrði til lækkunar og öfugt ef hún hækkar. Breyting á gengi gjaldmiðla færist þá yfir á lánstímann. Styrkist krónan styttist lánstíminn, en lengist ef krónan veikist. Veiking krónunnar getur aldrei lengt lánstíma meira en sem nemur þremur árum og standi eitthvað eftir af þeim tíma liðnum verður það afskrifað.
* Greiðslujöfnunarvísitala er reiknuð og birt á vef Hagstofu Íslands.
Fastgreiðsluleið
Fastgreiðsluleið felur í sér að samið er um fasta reglulega greiðslu og lántakandi getur þar með gengið að greiðslubyrði lánsins sem vísri fram í tímann. Við ákvörðun fastrar greiðslu er miðað við gengi 2. maí 2008. Viðskiptavinum gefst kostur á að endurskoða fastgreiðsluupphæð með reglulegu millibili. Sá munur sem myndast við þessa aðlögun á greiðslubyrði bætist við höfuðstól lánsins eða dregst frá honum, allt eftir gengisþróun íslensku krónunnar og við það lengist lánstíminn eða styttist.
5.000 kr. fastar greiðslur erlendra íbúðalána
Öllum einstaklingum sem tekið hafa íbúðalán (fasteignalán) í erlendri mynt með veði í íbúðahúsnæði stendur til boða að greiða 5.000 kr. fasta mánaðarlega greiðslu af hverri milljón af upprunalegum höfuðstól.
Þetta tímabundna úrræði gildir til 31.03.2011 eða þar til skorið verður úr um réttarágreining fyrir dómstólum.
Nánar um 5.000 kr. fastar greiðslur erlendra íbúðalána
Lenging lána
Þegar lán eru komin í vanskil getur verið fýsilegt að lengja í viðkomandi láni, sem felur yfirleitt í sér fjölgun á gjalddögum þess. Með þessu móti er dregið úr mánaðarlegri greiðslubyrði. Markmiðið með lengingu lána er að staða viðskiptavinarins eftir breytingu verði viðráðanlegri til lengri tíma litið.
Frysting vaxta og/eða afborgunarhluta
Þegar um er að ræða greiðsluerfiðleika þar sem aðrar leiðir duga ekki til er mögulegt að frysta vaxta og/eða afborgunarhluta lána. Þetta er þó einungis gert ef greiðslugeta lántaka verði betri til lengri tíma litið að frystingartímabili loknu.
Ráðgjafar Byrs veita þér aðstoð og upplýsingar um lausnir vegna gengistryggðra lána. Hægt er að hafa samband við ráðgjafa okkar í síma 575 4000, með því að senda okkur fyrirspurn eða með því að koma í næsta útibú okkar.
