Markmið með greiðsluaðlögun er að gera einstaklingum í verulegum greiðsluerfiðleikum kleift að endurskipuleggja fjármál sín og koma jafnvægi á milli skuldara og greiðslugetu þannig að raunhæft sé að skuldari geti staðið við skuldbindingar sínar um fyrirsjáanlega framtíð.
Ef umsækjandi uppfyllir skilyrði laga nr. 101/2010 til að fá heimild til greiðsluaðlögunar er skipaður umsjónarmaður sem vinnur að gerð samnings um greiðsluaðlögun. Samningurinn getur kveðið á um að greitt sé af skuldum í samræmi við greiðslugetu. Lengd greiðsluaðlögunartímabils skal að jafnaði vera 1 til 3 ár.
Einstaklingar, hjón og sambúðaraðilar geta sótt um greiðsluaðlögun. Hjón og sambúðaraðilar geta sótt um saman.
Nánari upplýsingar um úrræðið er að finna á vef umboðsmanns skuldara.
