Sértæk skuldaaðlögun er samkomulag sem Samtök fjármálafyrirtækja, Íbúðalánasjóður og Landssamband lífeyrissjóða hafa gert með sér um aðgerðir til aðstoðar skuldsettum heimilum í landinu, og er það úrræði sem tekur við ef sýnt þykir fram á að önnur vægari úrræði duga ekki til að ná fram varanlegri lausn á greiðsluvanda einstaklinga.
Helstu upplýsingar
- Úrræði fyrir þá sem eru í verulegum greiðsluvanda
- Skulda- og eignastaða lántaka löguð að greiðslugetu
- Kröfuhafar geta fallist á eftirgjöf krafna, hlutfallslega lækkun þeirra eða gjaldfrest á þeim kröfum sem eru umfram greiðslugetu
- Lántaki heldur að lokum hóflegu íbúðarhúsnæði og einum bíl með viðráðanlegri greiðslubyrði
- Skuldaaðlögun tekur til allra skulda við fjármálafyrirtæki, fasteignaveðkrafna, bílalána, skuldabréfalána, heimilda og kreditkortaskulda
- Skuldaaðlögun tekur ekki opinberra gjalda, skulda vegna trygginga, rafmagns og hita o.fl.
- Lánsveð í fasteign þriðja aðila eru fryst til 3 ára
- Sækja þarf um sértæk úrræði hjá ráðgjöfum Byrs
Ítarlegt greiðslumat er unnið á lántaka og maka hans. Náist samkomulag milli lántaka og lánveitanda er útbúinn samningur til 3 ára. Ef ábyrgðarmenn eru á skuldbindingum þarf að greiðslumeta ábyrgðarmenn og taka þeir við skuldbindinum miðað við greiðslugetu og eignastöðu. Sé greiðslugeta lántaka hins vegar veruleg getur hann óskað eftir frystingu á meðan á skuldaaðlögun stendur.
Sértæk skuldaaðlögun felur í sér að skuldir og eignir einstaklings í greiðsluvanda eru lagaðar að greiðslugetu hans. Fasteignalán eru færð niður í 100% af verðmati eða fasteignamati hvor sem reynist hærra. Lántaki og maki hans verða að geta greitt af fasteignaláni sem nemur a.m.k. 70% af verðmæti eða fasteignamati hvort sem reynist hærra og 100% af bílaláni. Ef greiðslugeta lántaka nær ekki 100% er mismunurinn settur á biðlán til þriggja ára án vaxta og verðbóta. Sé greiðslugeta lántaka umfram 100% af fasteignaveðkröfum og 100% af bílaláni greiðist mismunurinn inn á aðrar kröfur, samningskröfur.
Standi skuldari við samning um sértæka skuldaaðlögun eru samningskröfur og fasteignalán umfram 100% afskrifað að samningi loknum og lántaki tekur við fasteignaláni og eftir atvikum skuldbindingum með tryggingum. Skuldir umfram 100% af verðmæti húsnæðis eru felldar niður.
Umsókn um sértæk úrræði
Hægt er að sækja um sértæk eða önnur úrræði vegna skuldavanda með því að fylla út umsóknareyðublað sem finna má hér neðar. Umsóknina er hægt að fylla út rafrænt og skila í næsta útibú Byrs.
Ráðgjafar Byrs veita þér aðstoð og upplýsingar um þessi og önnur úrræði sem í boði eru. Hægt er að hafa samband við ráðgjafa okkar í síma 575 4000, með því að senda okkur fyrirspurn eða með því að koma í næsta útibú okkar.
