Sértæk úrræði

Sértæk úrræði eru ætluð einstaklingum og fela í sér samning milli kröfuhafa og lántaka um leið til að laga skulda- og eignastöðu lántakans að greiðslugetu hans. Lántakinn greiðir af skuldum sínum eins og greiðslugeta hans leyfir á samningstímanum en kröfuhafar geta fallist á eftirgjöf krafna, hlutfallslega lækkun þeirra eða gjaldfrest á þeim kröfum sem eru umfram greiðslugetu. Gert er ráð fyrir sölu eigna umfram það sem nauðsynlegt er til venjulegs heimilishalds en miðað er við að í lok skuldaaðlögunartímabilsins haldi lántaki hóflegu íbúðarhúsnæði og einum bíl með viðráðanlegri greiðslubyrði. Ef lántaki stendur ekki við greiðslur í samræmi við gerðan samning um skuldaaðlögun geta kröfuhafar ákveðið að samningur falli niður.

Helstu upplýsingar

  • Úrræði fyrir þá sem eru í verulegum greiðsluvanda
  • Skulda- og eignastaða lántaka löguð að greiðslugetu 
  • Kröfuhafar geta fallist á eftirgjöf krafna, hlutfallslega lækkun þeirra eða gjaldfrest á þeim kröfum sem eru umfram greiðslugetu
  • Lántaki heldur að lokum hóflegu íbúðarhúsnæði og einum bíl með viðráðanlegri greiðslubyrði
  • Sækja þarf um sértæk úrræði hjá ráðgjöfum Byrs

Umsókn um sértæk úrræði

Hægt er að sækja um sértæk eða önnur úrræði vegna skuldavanda með því að fylla út umsóknareyðublað sem finna má hér neðar. Umsóknina er hægt að fylla út rafrænt og skila í næsta útibú Byrs.

Ráðgjafar Byrs veita þér aðstoð og upplýsingar um þessi og önnur úrræði sem í boði eru. Hægt er að hafa samband við ráðgjafa okkar í síma 575 4000, með því að senda okkur fyrirspurn eða með því að koma í næsta útibú okkar.

Stillingar