Lausnir fyrir heimilin
Hjá Byr bjóðast lausnir og ráðgjöf sem geta létt fjárhagsstöðu heimila í greiðsluvanda. Lögð er áhersla á samræmd vinnubrögð, þó lausnir við greiðsluvanda geti verið mismunandi eftir umfangi og aðstæðum viðskiptavina. Lausnir Byrs eru í samræmi við tilmæli ríkisstjórnar Íslands. Ýmsar upplýsingar frá stjórnvöldum er að finna á upplýsinga- og þjónustuveitunni island.is.
Lausnir fyrir heimilin
- Lítill greiðsluvandi: 5.000 kr. fastar greiðslur, greiðslujöfnun
- Meðal greiðsluvandi: Frysting vaxta og/eða afborgunarhluta, lenging lánstíma, vanskil lögð við höfuðstól
- Mikill greiðsluvandi: Sértæk skuldaaðlögun, umboðsmaður skuldara
Fyrsta skrefið er að hafa samband við ráðgjafa. Því fyrr sem það er gert, þeim mun meiri líkur eru á að hentug lausn finnist. Skila þarf inn umsókn vegna greiðsluvanda, en til að flýta fyrir vinnslu umsóknarinnar þarf umsækjandi að skila eftirfarandi gögnum með umsókninni:
Fylgigögn með umsókn
- Skattaframtöl síðustu þriggja ára
- Afrit af launaseðlum eða öðrum tekjum síðustu 6 mánaða
- Afrit af greiðsluseðlum lána
- Yfirlit yfir eignir
- Upplýsingar um atvinnumissi, veikindi eða annað sem varpar ljósi á stöðuna
Ef þú átt í greiðsluerfiðleikum gríptu strax til aðgerða og ræddu við þinn ráðgjafa. Saman reynum við að finna lausn á greiðsluerfiðleikum þínum.
