Grunnskóli

Við hjá Byr námsmönnum teljum mjög mikilvægt að námsmenn læri að fara vel með peninga strax frá upphafi. Því mælum við reglulegum sparnaði en öll grunnskólabörn, 9 ára og eldri sem eiga reikning hjá Byr eru sjálfkrafa meðlimir í Byr námsmönnum.


Við erum Byr námsmenn

  • Aðstoð við að fara vel með peningana og spara
  • Tveir miðar í Sambíóin í inngöngugjöf

Við veitum þér með ánægju allar nánari upplýsingar um sparnað og annað sem þú getur gert til að byggja upp góðan fjárhag.


Spurt og svarað

Ákvarðanir um fjármál eru mikilvægur þáttur í lífi fólks á öllum aldri. Í eftirfarandi texta er leitast við að varpa ljósi á þær reglur sem gilda um meðferð fjármuna ófjárráða einstaklinga, einkum barna. Umfjöllunin er þó langt frá því að vera tæmandi.

Síðast uppfært: 27.október.2010  |  Efst á síðu

Um lögræði er fjallað í lögræðislögum, nr. 71/1997. Einstaklingar verða lögráða 18 ára en þá öðlast þeir bæði sjálfræði og fjárræði. Börn eru því ófjárráða til 18 ára aldurs. Lögráðamenn fara með fjármál barns fram að 18 ára aldri. Lögráðamenn eru foreldrar barns (kynforeldrar eða kjörforeldrar) sem fara

Síðast uppfært: 27.október.2010  |  Efst á síðu

Í lögræðislögum eru fjármunir barna flokkaðir. Mismunandi reglur gilda um meðferð fjármuna eftir flokkum: Sjálfsaflafé er það fé sem barnið hefur sjálft unnið sér inn. Gjafafé er það fé sem barninu hefur verið gefið. Annað fé en að ofan greinir. Sem dæmi má nefna arf

Síðast uppfært: 27.október.2010  |  Efst á síðu

Samkvæmt lögræðislögum ræður ófjárráða einstaklingur ekki yfir fé sínum nema lög kveði á um annað. Lögráðamaður ræður því yfir fjármunum ófjárráða einstaklings. Umráð lögráðamanns ná þó hvorki til eftirtalins fjár né vaxta og verðbóta af því: Þess fjár sem barnið hefur sjálft unnið sér inn (sjálfsaflafé)

Síðast uppfært: 27.október.2010  |  Efst á síðu

Lögráðamaður ber ábyrgð á þeim fjármunum barns sem hann hefur umráðarétt yfir samkvæmt lögræðislögum. Lögráðamaður skal ávallt halda fjármunum barns aðgreindum frá eigin fjármunum. Misfari lögráðamaður með fé barns ber hann bótaábyrgð gagnvart barninu.

Síðast uppfært: 27.október.2010  |  Efst á síðu

Sýslumenn eru yfirlögráðendur í sínu umdæmi. Hlutverk þeirra felst m.a. í að hafa eftirlit með ráðstöfunum lögráðamanna með fjármuni barna. Samþykki yfirlögráðanda þarf til ýmissa ráðstafana sem varða fjármuni ófjárráða einstaklinga. Sem dæmi má nefna (ekki er um tæmandi upptalningu að ræða): Lögráðamanni er skylt að hafa

Síðast uppfært: 27.október.2010  |  Efst á síðu

Stillingar