Hjá Byr námsmönnum færðu frí greiðslukort sem veita þér margs konar afslætti og önnur fríðindi. Á þessum frábæru tilboðum getur þú sparað heilan helling (og pumpað upp fjárhagslegu heilsuna). Afsláttarkjör Byrs námsmanna gilda óháð því hvort greitt er með námsmannadebetkorti eða námsmannakreditkorti.
Frítt námsmannadebetkort
Þú færð 150 frífærslur á ári og afslætti á völdum stöðum.
Frítt Námsmannakreditkort
Veldu hefðbundið eða fyrirframgreitt kreditkort. Byr námsmenn mæla með fyrirframgreiddu MC námsmannakreditkorti. Þú færð öll fríðindin sem fylgja hefðbundna krítarkortinu - punktasöfnun upp í ferðaávísun og ferðatryggingar – en þar sem þetta krítarkort er fyrirframgreitt þá eyðir þú ekki meiru en þú ætlar þér hverju sinni.
Frítt Einkaklúbbskort
Frítt Einkaklúbbskort fylgir öllum námsmannakreditkortum frá MasterCard en kortið veitir afslátt hjá yfir 300 fyrirtækjum um land allt.
Eldsmiðjan
Þú færð 15% afslátt af öllu á matseðli hjá Eldsmiðjunni. Afslátturinn gildir ekki á drykkjum og tilboðum.
Hraðlestrarskólinn
Auktu námsmannaheilsuna með meiri lestrarhraða, meiri einbeitingu og meiri lestrarskilningi. Byr námsmenn fá 10.000 kr. fastan afslátt af hraðlestrarnámskeiðum og 5.000 kr. afslátt af framhaldsnámskeiðum. Kynntu þér málið nánar á heimasíðu Hraðlestrarskólans.
Langbest, Reykjanesbæ
Þú færð 15% afslátt af öllu nema drykkjum. Gildir ekki með öðrum tilboðum.
Sambíó
Þú færð 2 fyrir 1 í Sambíóin alla mánudaga. Hina vikudagana færðu 20% afslátt og gildir sá afsláttur fyrir allt að fjóra miða á hverja sýningu. Tilboðin gilda ekki ef miðar eru keyptir á netinu og gilda einungis af almennu miðaverði.
Subway
10% afsláttur af öllu á girnilega matseðlinum hjá Subway.
Te & kaffi
15% afsláttur af te og kaffidrykkjum.
Gott að muna
- Hjá Byr námsmönnum færðu greiðslukortin alltaf frí á meðan þú ert í námi - ekki bara fyrsta árið.
- Almenna reglan er að afsláttarkjör Byrs námsmanna eiga ekki við um önnur tilboð hjá viðkomandi verslun eða þjónustuaðila.
