Skólastyrkir
að upphæð 25.000 kr. og 200.000 kr.
Allir sem eru við nám í framhaldsskóla eða háskóla geta sótt um skólastyrk Byrs.
Alls eru veittir sex styrkir, þar af fjórir 25.000 kr. styrkir á framhaldsskólastigi og tveir 200.000 kr. styrkir á háskólastigi. Úthlutunin fer þannig fram að dregið er úr innsendum umsóknum á framhaldsskólastigi. Þær umsóknir sem berast um skólastyrki á háskólastigi eru á hinn bóginn metnar með hliðsjón af framsetningu og frágangi umsóknarinnar, námsárangri, meðmælum og framtíðaráformum. Við biðjum þess vegna þá sem eru á háskólastigi að senda okkur stutta greinargerð um fyrrnefnda þætti sem viðhengi með umsókn sinni.
Eina skilyrðið fyrir að senda inn umsókn er að þú sért í námsmannaþjónustu Byrs!
