Sparnaðarráð Byrs

10 bestu sparnaðarráð Byrs námsmanna
  • Fáðu þér fyrirframgreitt kreditkort. Það virkar eins og debetkort og þú færð öll ferðafríðindi kreditkorts.
  • Taktu út af debetkortinu í næsta hraðbanka og sparaðu færslugjöld.
  • Ekki fara í mínus. Ef þú ferð yfir á reikningnum þínum þarftu að borga frekar há gjöld.
  • Fylgstu vel með stöðunni á reikningnum þínum. Þá veistu alltaf hvað þú átt mikið eftir.
  • Sæktu um heimabanka hjá Byr. Þar getur þú fylgst jafnóðum með stöðunni á fjármálunum.
  • Peningarnir geta verið ótrúlega fljótir að fara. Fylgstu vel  með í hvað þeir fara.
  • Vertu í plús. Fylgstu vel með útgjöldunum með sjálfvirku heimilisbókhaldi í heimabanka Byrs.
  • Lán eru dýr. Ódýrast fyrir þig er að forðast þau.
  • Reyndu að spara og eiga fyrir hlutunum áður en þú kaupir þá.
  • Sparnaður er lífsstíll. Fáðu ókeypis ráðgjöf hjá Byr og sjáðu hvort þú getir gert betur í fjármálunum þínum.

Vonandi hafa sparnaðarráðin hér að ofan gagnast þér. 

Stillingar