GSM banki
Auðveld og aðgengileg nýjung sem getur komið sér vel. Þjónustan er viðskiptavinum Byrs að kostnaðarlausu en greiða þarf fyrir netnotkun símans eins og ávallt þegar vafrað er á netinu í símanum.
Slóðin fyrir GSM-bankann okkar er gsm.byr.is
Í GSM bankanum getur þú
- Millifært
- Greitt reikninga
- Fylgst með stöðu reikninga
- Fylgst með stöðu greiðslukorta
- Fengið upplýsingar um vísitölur
- Fengið upplýsingar um vísitölur
- Fengið upplýsingar um gengi gjaldmiðla
- Flett upp í símaskránni
Fyrir bæði heima- og fyrirtækjabanka
GSM-Bankinn okkar er aðgengilegur öllum viðskiptavinum sem eru með aðgang að heimabanka eða fyrirtækjabanka. Það eina sem þú þarft er farsími með internettengingu og vafra á borð við Explorer.
Þegar þér hentar
Þjónustan er að öllu leyti með óbreyttu sniði, bæði hvað útlit og notkun varðar. Þú skráir þig inn GSM-Bankann á sama hátt og í heimabankann eða fyrirtækjabankann með notendanafni, lykilorði og auðkennisnúmeri. Ekkert vesen.
GPRS eða 3G
Til að komast í heimabankann eða fyrirtækjabankann þinn á farsímanum, þarf hann að vera með internetaðgang og vafra á borð við Explorer. Í flestum tilvikum þýðir það að þú þarft farsíma með GPRS eða 3G. Flestir af algengustu farsímum eru með annað hvort. Nánari upplýsingar um internettengingar í farsímanum þínum færðu hjá símafyrirtækinu þínu eða þar sem hann var keyptur.
Svona virkjar þú farsímann
Áður en þú kemur heimabankanum í farsímann þinn, þarftu að ganga úr skugga um að hann allar stillingar fyrir internettengingu séu réttar. Upplýsingar og leiðbeiningar um uppsetningu fyrir slíkar stillingar eru á heimasíðum símafyrirtækjanna.
Einfalt og þægilegt
Þegar þú hefur gengið úr skugga um að þú getir vafrað á internetinu í farsímanum þínum, slærðu inn slóðina gsm.byr.is og að því búnu skráir þú þig inn og millifærir, skoðar stöðu reikninga eða greiðir reikninga á alveg sama hátt og áður.
Allar nánari upplýsingar um GSM-bankann hjá Byr færðu í hjá okkur í síma 575 4000 eða með því að senda okkur fyrirspurn.
