Heimabanki

Með Heimabankanum er hægt að sinna öllum helstu bankaviðskiptum, hvort sem er heima, í vinnunni eða erlendis, auk þess sem betri yfirsýn fæst yfir fjármálin.

Miklir notkunarmöguleikar

Þegar þú hefur fengið úthlutað notandanafni og lykilorði í Byr geturðu sinnt öllum helstu bankaviðskiptum hvar og hvenær sem er.

Aðstoð

Ef einhver vandræði koma upp við notkun Heimabankans er hægt að leita aðstoðar með eftirfarandi hætti:

  • Hringja í Heimabankaþjónustuna í síma 569 0200 
  • Hringja í þjónustuver Byrs í síma 575 4000 
  • Smella á hjálparhnappa sem í boði eru í Heimabankanum

Aðgangur að reikningum annarra

Í heimabanka Byrs er hægt að sækja um aðgang að reikningum, kreditkortum og fjármálaupplýsingum annarra. Þannig geta til dæmis hjón eða einstaklingar í sambúð notað sama Heimabankann og haft þannig öll sín fjármál á einum og sama staðnum.

Umboð fyrir Heimabanka (PDF skjal 64 KB)

Afhending notandanafns og lykilorðs

Umsækjandi þarf að koma á þann þjónustustað sem tilgreindur er í umsókn hans og fá þar úthlutað notandanafn og lykilorði gegn framvísun persónuskilríkja.  Ef umsækjandi á ekki auðkennislykil fær hann slíkan, en sami auðkennislykillinn veitir aðgang að heimabönkum í öllum bönkum og sparisjóðum. Við fyrstu innskráningu þarf að virkja auðkennislykilinn og eftir það þekkir lykillinn eiganda sinn.


 

Nánari upplýsingar

  • millifært milli reikninga
  • greitt gíróseðla
  • greitt greiðsluseðla
  • greitt "ógreidda reikninga"
  • greitt inn á lán 
  • vistað reglulegar greiðslur
  • sótt um beingreiðlur
  • hlaðið GSM-frelsi

  • yfir reikninga
  • yfir greiðslukort
  • yfir færslur í Heimabankanum
  • fyrir skattframtal
  • yfir stöðu skuldabréfa
  • yfir stöðu lána hjá LÍN
  • yfirlit yfir rafræn skjöl, s.s. launaseðla
  • yfirlit yfir endurteknar greiðslur

  • sett upp þitt eigið eignasafn og fylgst með stöðunni í Heimabankanum
  • yfirlit og gengisþróun hlutabréfa
  • yfirlit og gengisþróun sjóða
  • upplýsingar um tilboð og viðskipti beint frá Kauphöll Íslands 

  • Valið þín eigin nöfn á reikninga og stjórnað í hvað röð þeir birtast
  • Stillt hvaða upplýsingar þú villt hafa á upphafssíðu Heimabankans
  • Breytt lykilorði
  • Fengið tilkynningar með tölvupósti eða SMS skilaboðum

    

Stillingar