Heimilisbókhald
Ég vil betri yfirsýn yfir fjármálin
Heimilisbókhald er nýjung í Heimabanka Byrs sem kortleggur fjármálin fyrir þig, þér að kostnaðarlausu. Í hvert sinn sem þú notar t.d. greiðslukortið þitt eða færð útborguð laun, sér þessi snjalla lausn um að færa það sjálfvirkt í heimilisbókhaldið þitt. Skilyrði er að vera með Heimabanka hjá Byr.
Helstu kostir
- Sjálfvirkt heimilisbókhald, enginn innsláttur
- Nákvæm yfirsýn yfir fjármálin þín - fyrirhafnarlaust
- Einfalt og fljótlegt að sjá hvort útgjöld eru meiri/minni en tekjur
- Hægt að bera saman útgjöld og tekjur milli mánuða og ára
- Auðveldari leið til að setja raunhæf sparnaðarmarkmið
Heimilisbókhaldið er hluti af Heimabanka Byrs og byggir á þeim rafrænu upplýsingum sem þegar eru til staðar um tekjur þínar og útgjöld. Þess vegna er heimilisbókhaldið aðeins aðgengilegt í gegnum Heimabankann þinn.
