Hraðbanki
Byr starfrækir hraðbanka víða á sínu starfsvæði. Viðskiptavinir Byrs geta tekið allt að 30.000 kr. á sólarhring út úr hraðbönkunum, en viðskiptavinir annara fjármálafyrirtækja geta tekið út allt að 15.000 kr. á sólarhring.
Helstu kostir
- Hægt er að taka út peninga af debet- og kreditkortareikningum
- Hægt er að fá yfirlit af debetkortareikningum
- Hægt er að millifæra af debetkortareikningi inn á alla reikninga
Gagnlegar ábendingar
- Hafðu kortið tilbúið þegar röðin kemur að þér, ekki fara að leita að því þá
- Byrgðu sýn annarra þegar þú slærð inn PIN-númerið og þegar þú tekur við peningum
- Í sumum tilvikum getur verið betra að stinga korti og peningum strax á sig og telja þá seinna á öruggum stað
- Við notkun á hraðbanka í lokuðu rými notar þú kortið til að opna en athugaðu að einhver getur fylgt þér inn þegar opnað er
- Fáðu uppgefið hjá Byr eða kortafyrirtækinu hver er hámarksúttekt á dag
- Víða erlendis hefur þú val um nokkur tungumál við afgreiðslu úr hraðbönkum
Nokkur ráð varðandi notkun á greiðslukortum
- Gættu þess að rispa ekki né beygja kortið
- Geymdu kortið á öruggum stað
- Leggðu PIN-númerið á minnið
- Gefðu aldrei öðrum upp PIN-númerið og geymdu það aldrei með eða hjá kortinu sjálfu
- Geymdu allar kvittanir af kortanótum og berðu þær saman við úttektaryfirlit
- Tilkynntu strax til Byrs eða til kortafyrirtækis um glatað eða stolið kort
