Yfirsýn og sparnaður

Netgreiðsluþjónusta gerir þér kleift að halda utan um fjármálin á auðveldari og þægilegri máta. Þú færð betri yfirsýn yfir fjármálin og greiðslubyrðin verður jafnari yfir árið.

Helstu kostir

  • Hærri innlánsvextir og lægri yfirdráttarvextir en á hefðbundinni greiðlsuþjónustu
  • Ekkert stofngjald, mánaðargjald, endurnýjunargjald, eða breytingargjald
  • Bæði hægt að velja greiðsluþjónustu og beingreiðslur
  • Jafnari greiðslubyrði út árið
  • Góð yfirsýn yfir fjármálin og útgjöldin

Nauðsynlegt er að yfirfara greiðsluþjónustuna reglulega og sjá til þess að allt sé í samræmi við uppsetta áætlun og gera breytingar ef þörf krefur. Ýmsar ytri ástæður geta breytt áætluninni, til að mynda verðbólga, gjaldskrárhækkanir og óvæntir reikningar.

Netgreiðsluþjónustan er hluti af heimabanka Byrs og er aðeins aðgengileg þar. Í heimabankanum getur þú einnig flutt hefðbundna greiðsluþjónustu yfir í netgreiðsluþjónustu og þannig aukið yfirsýn þína ásamt því að fá betri kjör.

Stillingar