Almennt

Allir sem eru með heimabanka Byrs geta nýtt sér netgreiðsluþjónustuna. Sækja má um aðgang að heimabankanum á heimsíðu Byrs eða í næsta útibúi.

Síðast uppfært: 13.janúar.2010  |  Efst á síðu

Aðgangur að netgreiðsluþjónustunni er í gegnum heimabankann. Hún lýtur því sömu öryggisreglum og hann og er með sama notendavæna viðmótið. Afar einfalt er að stofna til þjónustunnar. Leiðbeiningar leiða notendur skref fyrir skref í gegnum ferlið, auk þess sem ítarlegri leiðbeiningar eru í kennslubanka heimabankans.

Síðast uppfært: 13.janúar.2010  |  Efst á síðu

Netgreiðsluþjónustan er að öllu leyti sambærileg hefðbundinni greiðsluþjónustu. Eini munurinn er sá að þú stýrir henni úr heimabankanum þínum, auk þess sem hún er þér að kostnaðarlausu. Þjónustan skiptist í eftirtalda þætti:

  • Greiðsluáætlun
  • Greiðslueftirlit
  • Samanburður
  • Stillingar

Síðast uppfært: 13.janúar.2010  |  Efst á síðu

Netgreiðsluþjónustan er notendum hennar að kostnaðarlausu. Engin þjónustugjöld eða færslugjöld eru tengd henni.

Síðast uppfært: 13.janúar.2010  |  Efst á síðu

Hún tekur gildi strax og þú hefur samþykkt samninginn. Greiðslusamningur er í gildi þar til við uppsögn eða þegar öllum lokadagsetningum á greiðsluliðum er náð.

Síðast uppfært: 13.janúar.2010  |  Efst á síðu

Þú þarft að vera með upplýsingar um síðustu greiðsluseðla allra skulda og reglulegra útgjalda sem þú vilt láta greiða fyrir þig. Þessar upplýsingar er flestar að finna í heimabankanum þínum. Athugaðu að á sumum greiðsluliðum eru afborganir óreglulegar. Dæmi um slíka greiðsluliði eru fasteignagjöld sem algengt er að greidd séu vissa mánuði á ári. Ef þú velur „Annað“ undir Tíðni greiðslu getur þú valið þá mánuði sem við á.

Síðast uppfært: 13.janúar.2010  |  Efst á síðu

Allir útgjaldaliðir sem stofnaðir eru í netgreiðsluþjónustu þurfa að vera í skilum. Að öðrum kosti gefur greiðsluáætlunin ekki rétta mynd.

Síðast uppfært: 13.janúar.2010  |  Efst á síðu

Smellt er á hnappinn „Hætta í greiðsluþjónustu“ undir Stillingar í netgreiðsluþjónustu. Þá fara allar færslur úr sjálfvirkri skuldfærslu. Til þess að nálgast innstæðu reikningsins, ef slík er fyrir hendi, eða til að gera upp heimild þarftu að snúa þér til eins af ráðgjöfum Byrs.

Síðast uppfært: 13.janúar.2010  |  Efst á síðu

Við uppsögn eru allar greiðslur og beingreiðslubeiðnir tengdar samningnum felldar niður úr kerfinu og samningnum lokað. Greiðslusamningi er sagt upp 5. hvers mánaðar. 25. hvers mánaðar er send viðvörun vegna uppsagnar á samningi. Þetta er gert 10 dögum fyrir uppsögn.

Síðast uppfært: 13.janúar.2010  |  Efst á síðu

Já, slíkur reikningur stofnast um leið og greiðsluáætlun er samþykkt. Ef verið er að flytja hefðbundna greiðsluþjónustu yfir á netið færist reikningurinn sjálfkrafa með. Ef þú velur að „taka beint af reikningi“ stofnast ekki sér reikningur verður sami reikningur notaður áfram.

Síðast uppfært: 13.janúar.2010  |  Efst á síðu

Nei, ekki hjá sama fjármálafyrirtæki.

Síðast uppfært: 13.janúar.2010  |  Efst á síðu

Já, þú getur gert það með því að smella á hnappinn „flytja greiðsluþjónustu“ undir greiðsluáætlun í heimabankanum þínum. Þá færist gamla greiðsluþjónustan yfir á netið. Athugaðu að nauðsynlegt er að fylgjast reglulega með því hvort greiðslur eru ekki að fara í gegn til að mynda með því að skoða Greiðslueftirlit reglulega.

Síðast uppfært: 13.janúar.2010  |  Efst á síðu

 

Efst á síðu

Greiðsluáætlun

Í greiðsluáætluninni eru listaðir upp þeir reikningar og aðrir útgjaldaliðir sem greiðsluþjónustan sér um að borga fyrir þig. Öll umsýsla greiðsluáætlunarinnar fer fram í samnefndum flipa. Þarna stofnar þú hana og bætir við eða eyðir út reikningum. Greiðsluáætlunin verður virk um leið og þú hefur staðfest hana.

Gott ráð: Hægt er að setja upp óstaðfesta greiðsluáætlun. Það gefur þér kost á að skoða málin í rólegheitum. Þegar þú ert svo komin(n) með þá uppsetningu sem hentar þér best, þá staðfestir þú áætlunina.

Síðast uppfært: 13.janúar.2010  |  Efst á síðu

Já. Um leið og þú hefur staðfest nýju greiðsluáætlunina, sér netgreiðsluþjónustan um að fylgja henni eftir.

Síðast uppfært: 13.janúar.2010  |  Efst á síðu

Þú getur breytt greiðsluáætluninni í samnefndum flipa í heimabankanum.

Síðast uppfært: 13.janúar.2010  |  Efst á síðu

Nei, það er ekkert hámark á fjölda þeirra greiðslna eða skuldfærslna sem þú listar upp í greiðsluáætluninni. Eina skilyrðið er, að alltaf sé innstæða á netgreiðslureikningnum þínum fyrir mánaðarlegum útgjöldum.

Síðast uppfært: 13.janúar.2010  |  Efst á síðu

Já. Í því tilviki reiknar netgreiðsluþjónustan út hvaða yfirdráttarheimild nægir til að dreifa greiðslubyrði ársins jafnt á hvern mánuð og sækir sjálfvirkt um þá heimild fyrir þig. Ekki er hægt að sækja um hærri eða lægri upphæð en sú sem áætluð er. Ef greiðsluáætluninni er breytt til hækkunar þarftu að setja hak við "sækja um yfirdráttarheimild" um leið og þú samþykkir áætlun.

Síðast uppfært: 13.janúar.2010  |  Efst á síðu

Yfirdráttarheimild er háð útlánareglum á hverjum tíma. Ef áætluð heimild fæst ekki samþykkt þarftu að gera ráðstafanir sem brúa bilið þá mánuði sem innstæða dugar ekki fyrir áætluðum útgjöldum.

Síðast uppfært: 13.janúar.2010  |  Efst á síðu

Netgreiðsluþjónusta hentar afar vel fyrir mánaðarlega reikninga á borð við rafmagnsreikninga, símreikninga, afborganir af lánum, fasteignagjöld og bifreiðagjöld. Þá getur þjónustan verið sérlega hentug leið fyrir mánaðarlega greiðslujöfnun á háum útgjaldaliðum eins og tryggingariðgjöldum.

Síðast uppfært: 13.janúar.2010  |  Efst á síðu

Einu reikningarnir sem þú getur ekki sett upp í greiðsluáætlunina eru kreditkortareikningar og greiðsluseðlar vegna opinberra gjalda og vörsluskatta. Öll önnur útgjöld sem birtast í heimabankanum geturðu fært inn í greiðsluáætlunina. Önnur reglubundin útgjöld geturðu einnig fært inn, svo framarlega sem viðkomandi innheimta gefur kost á beingreiðslum.

Síðast uppfært: 13.janúar.2010  |  Efst á síðu

Ef tryggingar eru settar inn, verður að setja annað hvort allar tryggingar á ákveðinni kennitölu eða engar. Ástæðan er sú að greiðslur til tryggingarfélaga eru beingreiðslur, en þær virka þannig að allar tryggingar á ákveðinni kennitölu skuldfærast og þess vegna er ekki hægt að velja eina ákveðna.

Síðast uppfært: 13.janúar.2010  |  Efst á síðu

Já, þú getur valið um að taka af fleirum en einum reikningi. Ef þú og maki þinn eruð til að mynda með sameiginlega netgreiðsluþjónustu getur þú tekið út af reikningi hans, að því gefnu að hann hafi áður skilað inn umboði um að reikningar hans séu sýnilegir í heimabanka þínum.

Síðast uppfært: 13.janúar.2010  |  Efst á síðu

Já, þú getur valið hvenær skuldfærslan á sér stað, gættu þess þó á því að ávallt sé næg innstæða inni á netgreiðsluþjónustunni fyrir útgjaldaliðum.

Síðast uppfært: 13.janúar.2010  |  Efst á síðu

Almenna reglan er sú að ekki má vera greiðsla í vanskilum yfir tvenn mánaðarmót. Ef þessi regla er brotin jafngildir það uppsögn á samningi sem kerfið framkvæmir sjálfvirkt.

Síðast uppfært: 13.janúar.2010  |  Efst á síðu

Nei, það er ekki hægt. Netgreiðsluþjónusta greiðir einungis greiðsluseðla sem ekki eru komnir á gjalddaga.

Síðast uppfært: 13.janúar.2010  |  Efst á síðu

Þetta er gert í aðgerðinni „Greiðsluáætlun“. Þar velur þú „Innborganir“ og getur þú þar breytt skuldfærslureikningi þínum.

Síðast uppfært: 13.janúar.2010  |  Efst á síðu

Greiðsluliðir eru greiddir svo lengi sem innstæða er fyrir hendi. Mikilvægt er þó að fylgjast vel með stöðu mála í greiðslueftirliti en þar er hægt að sjá hvort stakir greiðsluliðir séu hærri en áætlun segir til um. Einnig er hægt að fá sent mánaðar- og ársfjórðungsyfirlit með tölvupósti þar sem þessar sömu upplýsingar koma fram.

Síðast uppfært: 13.janúar.2010  |  Efst á síðu

Já, þú getur valið um að fá sendan tölvupóst og/eða SMS þegar um slíkt er að ræða

Síðast uppfært: 13.janúar.2010  |  Efst á síðu

 

Efst á síðu

Greiðslueftirlit

Greiðslueftirlitið lætur þig vita um framvindu greiðsluáætlunarinnar. Undir þessum lið færðu yfirlit yfir greiðslustöðu, ógreidda reikninga og þá reikninga sem af einhverri ástæðu hafa ekki verið greiddir. Svokölluð umferðarljós segja til um stöðuna á hverri skuldfærslu:

  • Greitt samkvæmt áætlun.
  • Viðvörun - athuga þarf viðkomandi skuldfærslu. Gula ljósið birtist einnig þegar gjalddagi er liðinn, það þýðir þó ekki að færslan fari ekki í gegn, þar sem eindaginn er ef til vill ekki liðinn.
  • Innstæða ekki næg fyrir einni eða fleiri skuldfærslum eða beingreiðsla hefur verið felld niður.

Síðast uppfært: 13.janúar.2010  |  Efst á síðu

Kostnaður vegna þessa er samkvæmt verðskrá Byrs hverju sinni

Síðast uppfært: 13.janúar.2010  |  Efst á síðu

Þú færð sendar þær greiðslukvittanir sem berast til okkar. Flestar greiðslur í netgreiðsluþjónustunni eru rafrænar (skjalalausar) og því án greiðslukvittana. Eftirfylgni með greiðslum fer fram á í greiðslueftirliti þjónustunnar.

Síðast uppfært: 13.janúar.2010  |  Efst á síðu

 

Efst á síðu

Samanburður

Undir þessum lið getur þú borið saman núverandi áætlun við eldri áætlanir og skoðað þróun einstakra kostnaðarliða eftir tímabilum. Myndræn og aðgengileg framsetning sem gefur þér skýra mynd af þróun mála.

Síðast uppfært: 13.janúar.2010  |  Efst á síðu

 

Efst á síðu

Stillingar

Stillingar gera þér kleift að merkja við hvort þú viljir fá mánaðarlegt eða ársfjórðungslegt yfirlit yfir netgreiðsluþjónustu, hvort sem er með tölvupósti eða SMS. Í stillingum getur þú einnig valið um að hætta í netgreiðsluþjónustu.

Síðast uppfært: 13.janúar.2010  |  Efst á síðu

 

Efst á síðu

Stillingar