Pappírslaus viðskipti
Frá og með mánaðarmótunum júlí/ágúst hætti Byr að senda út mánaðarleg yfirlit og greiðsluseðla í pósti til viðskiptavina. Öll yfirlit og greiðsluseðla má finna á rafrænu formi í heimabanka Byrs.
Byr hætti að senda út eftirfarandi:
- Reikningsyfirlit
- Kreditkortayfirlit
- Greiðsluseðla kreditkorta og lána
Engin breyting varð á útsendum pósti til ólögráða einstaklinga.
Öruggari og einfaldari samskipti
Yfirlitin birtast sem áður í heimabankanum þínum. Pappírslaus viðskipti fela í sér bæði öruggari og einfaldari samskipti. Pósturinn skilar sér alltaf til þín í heimabankann sem aðeins þú hefur aðgang að. Ef þú ert ekki með heimabanka getur þú sótt um hann hér fyrir neðan eða í næsta útibúi Byrs.
Sparnaður í þína þágu og umhverfisins
Með því að stunda pappírslaus viðskipti getur þú sparað og um leið myndað umhverfisvænan sparnað (og minnkað póstinn sem kemur inn um bréfalúguna).
Hægt er að sækja um að fá heimsend yfirlit og greiðsluseðla á pappír hér fyrir neðan, í næsta útibúi Byrs eða með því að hringja í ráðgjafaver Byrs í síma 575 4000.
