Rafræn skilríki

Debetkort með rafrænum skilríkjum

Í örgjörvum nýrra debetkorta eru rafræn skilríki en með þeim er hægt að auðkenna sig með öruggum hætti á Netinu sem og í viðskiptum við Byr t.d. við innskráningu í Heimabanka. Tilkoma rafrænna skilríkja felur í sér aukna hagræðingu og minni umsýslu fyrir viðskiptavini, þjónustuveitendur, fyrirtæki og stofnanir. Viðskiptavinir Byrs sem þegar eiga debetkort hjá Byr geta sótt um debetkort með rafrænum skilríkjum.

Helstu kostir

  • Notendanöfnum og lykilorðum á netinu fækkar
  • Einfalda aðgengi – aðgangur að frekari upplýsingum og þjónustu
  • Auka öryggi í samskiptum – vafasamir einstaklingar geta ekki villt á sér heimildir
  • Koma í veg fyrir fölsun – ekki er hægt að breyta gögnum né villa á sér heimildir
  • Ekki er hægt að hafna skuldbindingum sem gerðar hafa verið með rafrænum hætti (viðskiptasamningar, skattaskil, verðbréfaviðskipti o.fl.)

Aðstoð vegna rafrænna skilríkja má nálgast hjá þjónustuveri Auðkennis í síma 530 0000 eða með því að senda skeyti á netfangið hjalp@audkenni.is. Þjónustuver Auðkennis er opið frá 9 - 17 alla virka daga. Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Skilríkis.


Spurt og svarað

Já, það er hægt. Kortalesarar eru seldir á kostnaðarverði. Kynntu þér verðið á kortalesurum í verðskrá Byrs.

Síðast uppfært: 27.janúar.2011  |  Efst á síðu

Rafræn skilríki er að finna í örgjörvum nýrra debetkorta. Þessi skilríki eru hönnuð til nota í rafrænum samskiptum og eru gefin út í samvinnu við íslenska ríkið. Handhafi rafræns skilríkis getur auðkennt sig með öruggum hætti á netinu, en þetta felur í sér verulegt hagræði og minni umsýslu.

Rafræn skilríki eru notuð á eftirfarandi hátt:

  • Til auðkenningar við innskráningu á vefi ýmissa þjónustuaðila, s.s. Heimabanka Byrs og hjá opinberum stofnunum.
  • Til undirritunar samninga og ýmissa skuldbindinga, s.s. leyfisumsókna, lána o.fl.

Síðast uppfært: 13.október.2010  |  Efst á síðu

Í framtíðinni mun það gera það. En á meðan innleiðingarferlið er í gangi, sem mun taka nokkur ár, verða auðkennilyklarnir áfram við lýði.

Síðast uppfært: 22.október.2010  |  Efst á síðu

Rafræn skilríki

  • Má nota við innskráningu á ýmsar vefsíður sem og til undirritunar á rafrænum skjölum hjá þjónustuaðilum.
  • Geyma upplýsingar um eiganda sinn, t.d. nafn og kennitölu.
  • Eru innbyggð í debetkort.
  • Þarfnast kortalesara tengdan tölvunni og hugbúnað til að lesa upplýsingarnar af skilríkjunum.
  • Er með eitt og sama lykilorðið fyrir alla auðkenningu.

Auðkennislykill

  • Er eingöngu notaður við innskráningu í Heimabanka.
  • Geymir engar upplýsingar.
  • Er lyklakippa.
  • Þarfnast ekki uppsetningar á aukalegum tæknibúnaði í tölvu notandans.
  • Gefur upp mismunandi númer í hvert skipti sem beðið er um innslátt á því, ásamt með hefðbundnu notendanafni og lykilorði.

Síðast uppfært: 13.október.2010  |  Efst á síðu

Nei, virknin á auðkennislyklinum helst óbreytt.

Síðast uppfært: 22.október.2010  |  Efst á síðu

  • Mæta í útibú Byrs í eigin persónu.
  • Hafa meðferðis persónuskilríki, t.d. vegabréf, ökuskírteini eða nafnskírteini.
  • Hafa meðferðis PUK-númerið sem nálgast má í netbankanum (einnig er að finna það í tilkynningu um nýtt debetkort).
  • Ákveða og leggja á minnið nýtt 6 tölustafa öruggt PIN-númer fyrir rafrænt skilríki. Sjá upplýsingar um öruggt PIN-númer . Athugaðu að PIN-númer fyrir hefðbundna notkun debetkorta er óbreytt.

Síðast uppfært: 22.október.2010  |  Efst á síðu

PUK stendur fyrir Pin Unlocking Key og er opnunarlykill fyrir rafræna skilríkja. Hægt er að nálgast PUK númerið í heimabankanum. Eftir að þú ert búinn að innskrá þig ferðu í stillingar, velur rafræn skilríki og þá færðu valmöguleikann á að sækja PUK númer.

Síðast uppfært: 22.október.2010  |  Efst á síðu

Fyrstu 4 stafirnir í PIN-númerinu eru notaðir við innskráningu á síður sem styðja rafræn skilríki.  Allir 6 stafirnir í PIN-númerinu eru notaðir til rafrænnar undirritunar skjala á síðum sem styðja rafræn skilríki.

Síðast uppfært: 22.október.2010  |  Efst á síðu

Já, þú getur breytt PIN-númerinu sem þú valdir þegar þú sóttir debetkortið með rafræna skilríkinu. Þetta er gert í Nexus Personal forritinu sem þú setur upp í tölvunni þinni til að auðkenna rafrænu skilríkin.

Síðast uppfært: 22.október.2010  |  Efst á síðu

Áður en þú getur byrjað að nota rafræn skilríki þarftu að fylgja eftirfarandi leiðbeiningum:

  • Sækja debetkortið með rafrænu skilríkjunum í útibú Byrs.
  • Setja upp Nexus hugbúnað, sem les örgjörvann á debetkortinu, í tölvunni þinni. Það er gert með því að fara inn á vefslóðina http://skilriki.is/notendur/hugbunadur/ og smella á hnappinn „Uppsetning búnaðar“. Síðan skal smella á „Sækja Nexus hugbúnað“ og hleðst hugbúnaðurinn þá inn á tölvuna þína.
  • Stinga lesara í samband við tölvuna eða nota innbyggðan lesara í tölvunni, sé slíkur til staðar. Ef hjálparkerfið opnast ekki sjálfkrafa þarf að keyra sérstakan rekil (e. Driver) fyrir lesarann. Hann gerir tölvunni kleift að tengjast við kortalesarann.
  • Setja upp lesara með „Hardware Wizard“ sem kemur sjálfkrafa upp á skjáinn. Sé lesari innbyggður í tölvuna þína þarf ekki að gera þetta.
  • Stinga debetkortinu í lesarann og byrja að nýta kosti rafræns skilríkis.
  • Ef skráning mistekst skal enduropna Nexus hugbúnaðinn.

Síðast uppfært: 22.október.2010  |  Efst á síðu

Það fyrsta sem þú gerir er að hringja í ráðgjafaver Byrs og tilkynna lokun. Ef þú ætlar að tilkynna lokun eftir kl. 17:00 þá skaltu hringja í neyðarnúmer kortafélagana. Ef þú ert handhafi Maestro debetkorts skaltu hringja í Borgun, s: 533-1400, og ef þú ert handhafi Electron skaltu hringja í Valitor, s: 525-2000.

Síðast uppfært: 22.október.2010  |  Efst á síðu

Fyrir notendur með Windows virka eftirtaldir vafrar:

  • Internet Explorer
  • Firefox
  • Chrome
  • Safari

Fyrir notendur með Mac virka eftirtaldir vafrar:

  • Firefox

Unnið er að frekar þróun til að styðja við fleiri vafrategundir fyrir Mac og verður það kynnt um leið og það liggur fyrir.

Síðast uppfært: 22.október.2010  |  Efst á síðu

Nei. Hægt er að sækja um Nexus hugbúnað fyrir Mac og Linux á heimasíðunni skilriki.is

Síðast uppfært: 22.október.2010  |  Efst á síðu

Já, svo framarlega sem þú ert með aðgang að öðrum heimabönkum.

Síðast uppfært: 22.október.2010  |  Efst á síðu

Auðkenning með rafrænum skilríkjum á netinu jafngildir því að framvísa persónuskilríkjum. Mörg fyrirtæki og stofnanir geta aukið þjónustu sína á netinu ef þau geta treyst því að viðskiptavinurinn sé sá sem hann segist vera. Rafræn skilríki skapa það traust.

Dæmi um notkun rafrænnar auðkenningar:

  • Netbankar
  • Skattstjórinn – skattframtal
  • Stjórnsýsla – samskipti við stjórnsýslu (t.d. rafræn Reykjavík)
  • Háskólar – samskipti innan skóla
  • Ýmsir þjónustuveitendur (t.d. símafyrirtæki, tryggingarfélög)

Síðast uppfært: 22.október.2010  |  Efst á síðu

Undirskrift með rafrænum skilríkjum jafngildir hefðbundinni undirskrift. Rafræn undirskrift tengir upplýsingar við tiltekinn einstakling.

Síðast uppfært: 22.október.2010  |  Efst á síðu

PIN stendur fyrir "Personal Identification Number" og er 6 stafa lykilorð (PIN) sem skilríkjahafi velur sjálfur við afhendingu skilríkja. Mikilvægt er að velja PIN-númer sem ekki er auðtengjanlegt einstaklingnum.

PIN-númerin sem fylgja rafrænum skilríkjum eru tvö:

  • PIN-númer til auðkenningar (fyrstu 4 tölustafirnir)
  • PIN-númer til undirskriftar (allir 6 tölustafirnir)

Síðast uppfært: 22.október.2010  |  Efst á síðu

Stillingar