Óverðtryggður sparnaður
Byr býður upp á úrval óverðtryggðra sparnaðarreikninga sem henta vel miðað við mismunandi aðstæður viðskiptavina. Vaxtakjör á reikningunum eru hagstæð, en vextir reiknast ýmist mánaðarlega eða árlega.
| Nafn sparireiknings | Binditími**** | Útgreiðsla vaxta | Úttektargjald |
|---|---|---|---|
| Ávöxtun | 1, 3, 6, 12 eða 18 mán. | Árlega | Nei |
| Gullárareikningur* | Óbundinn | 2x ári | Nei |
| Net12 | Óbundinn | Mánaðarlega | 1,5% hjá gjaldkera |
| PM reikningur** | 10 dagar | Árlega | Nei |
| Tromp reikningur | 0 - 60 mán. | Árlega | 0% - 1,5% |
| Vaxtavelta*** | Óbundinn | 4x ári | 0,90% innan 90 daga |
* Aðeins fyrir 60 ára og eldri.
** Lágmarksinnstæða 250 þúsund og 20 milljónir.
*** Lágmarksinnstæða 500 þúsund.
**** Nánari upplýsingar um binditíma í Spurt og svarað.
Spurt og svarað
Allir ofangreindir reikningar eru óbundnir fyrir utan Ávöxtun, Tromp og PM reikning.
Ávöxtun
Binditíminn miðast við heiti reiknings. Ávöxtun 1 er bundinn í einn mánuð, Ávöxtun 3 er bundinn í þrjá mánuði, Ávöxtun 6 er bundinn í sex mánuði osfrv. Eftir binditíma er innistæða laus í tvær vikur og binst svo aftur í upphaflegan binditíma reiknings. Dæmi: Lagt er inn 1. júní inn á Ávöxtun 1. Innistæðan er laus til úttektar frá 1. febrúar til 15. febrúar. Innistæðan binst aftur frá 16. febrúar í einn mánuð til 16. mars, er laus til úttektar frá 17. mars í 15 daga og svo framvegis.
Tromp
Hver innstæða er bundin í 12, 24, 36, 48 eða 60 mánuði og laus í einn mánuð að þeim tíma loknum, en binst síðan aftur í fimm mánuði. Innstæða reikninganna er þó ávallt laus til úttektar gegn greiðslu úttektargjalds, sem er samkvæmt verðskrá Byrs hverju sinni.
PM reikningur
Hægt er að velja um óbundinn PM reikning, en einnig reikning sem er bundinn í 10 daga. Á þeim reikningi er hvert innlegg er bundið í 10 daga, en er laust til úttektar að þeim tíma liðnum og binst ekki aftur.
Síðast uppfært: 18.ágúst.2011 | Efst á síðu
Það er ávallt hægt að stofna til reglulegs sparnaðar og búa þannig til varasjóð eða sjóð sem nýtist vel að öðru leyti. Ekki þarf alltaf að leggja stórar upphæðir inn í einu, því eins og máltækið segir þá "gerir margt smátt eitt stórt".
Síðast uppfært: 19.janúar.2010 | Efst á síðu
Það er misjafnt eftir reikningum. Nánari upplýsingar er að finna í upplýsingum um hvern og einn reikning.
Síðast uppfært: 19.janúar.2010 | Efst á síðu
Almennt er ekki krafist lágmarkaupphæðar á óverðtryggðum sparnaðarreikningur, fyrir utan PM reikning þar sem lágmarksinnstæða er 250 þúsund og 20 milljónir eftir því hvaða tegund PM reiknings er valin.
Síðast uppfært: 19.janúar.2010 | Efst á síðu
Það kostar ekkert að stofna óverðtryggðan sparnaðarreikning hjá Byr.
Síðast uppfært: 19.janúar.2010 | Efst á síðu
Það er misjafnt eftir reikningum hvort úttektarþóknun er tekin. Nánari upplýsingar er að finna í upplýsingum um hvern og einn reikning.
Síðast uppfært: 19.janúar.2010 | Efst á síðu
