Viðbótarlífeyrissparnaður
Fjárhagslegt öryggi eftirlaunaáranna er okkur öllum mikilvægt. Með því að hefja viðbótarlífeyrissarnað getur þú viðhaldið eða aukið lífsgæði þín við starfslok.
Helstu kostir
- Óskert lífsgæði á efri árum
- Allt að 2% mótframlag frá atvinnurekanda
- Engin upphafsþóknun
- Sveigjanleg starfslok, frá 60 ára aldri
- Lífeyrissjóður sem erfist, andstætt almennum lífeyrisgreiðslum
- Skerðir ekki grunnlífeyri almannatrygginga
- Fjárfestingaráherslur sem taka mið af aldri
- Mikið skattahagræði
Þann 25. nóvember sameinuðust Íslandsbanki og Byr undir merkjum Íslandsbanka. Íslandsbanki er eftir sameininguna vörsluaðili fyrir Lífsval Byrs og Viðbótarlífeyrissparnað Byrs (áður SPRON og Netbankans) auk Lífeyrisþjónustu Íslandsbanka. Áætlað er að samþætta sparnaðinn í byrjun árs 2012 í samráði við eftirlitsaðila. Þegar nær dregur munum við halda kynningarfund um sameininguna og senda nánari upplýsingar bréfleiðis. VÍB mun leggja kapp á að vanda vel til verksins og eru viðskiptavinir hvattir til að hafa samband við starfsmenn VÍB ef einhverjar spurningar vakna í síma 440-4920 eða koma í heimsókn til okkar í Eigna- og lífeyrisþjónustu Íslandsbanka á Kirkjusandi, 4 hæð.
Ef þig vantar nánari upplýsingar vegna þessa getur þú komið í heimsókn í næsta útibú, hringt í Ráðgjafaver í síma 575 4000 eða senda okkur fyrirspurn.
