Ábyrgðir
Byr býður allar tegundir innlendra ábyrgða, s.s. verkábyrgð, markaðsábyrgð, ábyrgð vegna sérstakrar skráningar á virðisaukaskatti, farmskírteinis-ábyrgð og húsaleiguábyrgð.
Bankaábyrgð tryggir hagsmuni bæði leigjanda og seljanda með því að gegna fjármögnunarhlutverki annars vegar og tryggingarhlutverki hins vegar.
Helstu kostir
- Leggja þarf fram tryggingu, oftast handveð í bók og kostnaður við skjalagerð á því er skv. verðskrá hverju sinni.
- Koma þarf með afrit af húsaleigusamningnum til grundvallar ábyrgðinni
- Ábyrgðin er gefin út að hámarki til eins árs í senn
- Að þeim tíma loknum er hægt að sækja um framlengingu
- Kostnaður við ábyrgðina er rukkaður samkvæmt verðskrá hverju sinni
- Að lágmarki er greitt fyrir 6 mánuði, sama hvað ábyrgðin er löng
Dæmi um ábyrgð vegna húsaleigu í 1 ár, kr. 300.000 í tryggingu*.
| Gjaldaliðir | Upphæð |
|---|---|
| Lágmarksgjald fyrstu 6 mánuði | 4.000 kr. (annars 1,25%) |
| Lágmarksgjald næstu 3 mánuði | 4.000 kr. (annars 0,25%) |
| Lágmarksgjald næstu 3 mánuði | 4.000 kr. (annars 0,25%) |
| Útbúið ábyrgðarskjal | 3.950 kr. |
| Útbúið skjal vegna handsveðs | 3.950 kr. (ef um handveð er að ræða) |
| Samtals | 19.850 kr. |
* miðað er við gjaldskrá í apríl 2010.
