Gjaldeyrisþjónusta
Komdu við í Byr og fáðu gjaldeyririnn þegar halda skal út í heim. Hjá okkur færðu seðla í allri skráðri mynt og greiðslukort frá Byr, Visa og Mastercard.
Byr býður einnig viðskiptavinum sínum alhliða gjaldeyrisþjónustu, vegna innflutnings sem útflutnings. Byr annast milligöngu um hverskyns viðskipti við útlönd, sem viðskiptavinir þarfnast á hverjum tíma. Byr er með öflug tengsl við banka, sparisjóði og fyrirtæki í öllum helstu viðskiptalöndum Íslendinga. Byr getur tekið að sér alhliða milliríkjaviðskipti fyrir viðskiptavini sína.
- SWIFT-númer Byrs er BYRSISRE.
- SSI (Standard Settlement Instructions for Byr hf.) (PDF skjal 46 KB)
Helstu kostir
- Ábyrgðir/Letters of Credit bæði vegna innflutnings og útflutnings
- Greiðsluábyrgðir/Guarantees t.d. vegna innflutnings á vöru og/eða þjónustu
- Innheimtur/Documentary Collections bæði vegna innflutnings og útflutnings
- Erlendar greiðslur eða símgreiðslur (SWIFT) þegar taka þarf við eða koma fjármunum fljótt og örugglega milli landa
- MoneyGram greiðslukerfi þar sem hægt er að senda peninga á örskömmum tíma víðs vegar um heiminn. Móttakandi þarf ekki að eiga bankareikning í viðkomandi landi einungis sýna skilríki við móttöku peninganna
Spurt og svarað um gjaldeyrisviðskipti
Spurt og svarað um gjaldeyrisviðskipti veitir á aðgengilegan og einfaldan hátt svör við öllum helstu spurningum sem varða gjaldeyrisviðskipti. Alla nánari ráðgjöf og leiðbeiningar færðu hjá ráðgjöfum Byrs í útibúinu þínu eða ráðgjafaverinu okkar í síma 575 4000. Einnig getur þú sent okkur fyrirspurn.
Spurt og svarað
Tilgangurinn með reglunum er að stöðva tímabundið gjaldeyrisútflæði sem gæti leitt til óhóflegrar gengislækkunar krónunnar þegar hömlum á gjaldeyrisviðskiptum vegna almennra viðskipta verður aflétt. Fyrirsjáanlegt er að innstreymi gjaldeyris vegna útflutnings mun á næstunni verða meira en útstreymi vegna innflutnings. Því mun smátt og smátt verða til umframgjaldeyrir sem hægt verður að selja erlendum aðilum og losa þá þannig út úr krónustöðum sínum.
Síðast uppfært: 15.september.2009 | Efst á síðu
Starfsmenn Byrs taka við öllum umsóknum um símgreiðslur. Allar símgreiðslur eru afgreiddar svo framarlega sem þær uppfylla reglur Seðlabanka Íslands. Þær greiðslur sem flokkast sem forgangsgreiðslur sjá starfsmenn um að senda og ættu þær að vera komnar inn á reikning viðtakanda eftir 3-5 daga.
Síðast uppfært: 15.september.2009 | Efst á síðu
Allar erlendar greiðslur er afgreiddar svo framarlega sem þær uppfylla reglur Seðlabanka Íslands.
Síðast uppfært: 15.september.2009 | Efst á síðu
Kreditkort (miðað við hámarksúttekt á sólarhring)
| Tegund korts | Hraðbanki | Gjaldkeri |
|---|---|---|
| Almennt kort | 50.000 kr. | 50.000 kr. |
| Gullkort | 75.000 kr. | 75.000 kr. |
| Platinumkort | 100.000 kr. | 100.000 kr. |
Debetkort (miðað við hámarksúttekt á sólarhring)
| Tegund korts | Hraðbanki | Gjaldkeri |
|---|---|---|
| Öll kort | 30.000 kr. | 150.000 kr. |
Síðast uppfært: 04.mars.2009 | Efst á síðu
Erlendar færslur á bæði debet- og kreditkortum eru reiknaðar út samkvæmt gengisskráningu Valitor fyrir Visa og Visa Electron og Borgunar fyrir MasterCard og Maestro.
Upplýsingar um gengi gjaldmiðla hjá Valitor
Upplýsingar um gengi gjaldmiðla hjá Borgun
Síðast uppfært: 15.september.2009 | Efst á síðu
Þetta þarf að meta hverju sinni. Vinsamlegast leitaðu nánari skýringa hjá ráðgjafa þínum hjá Byr eða ráðgjafaverinu okkar.
Síðast uppfært: 15.september.2009 | Efst á síðu
Já, hægt er að stofna slíkan reikning og leggja inn á hann í erlendri mynt eigi viðskiptavinuri gjaldeyrinn til.Ekki er leyfilegt að kaupa gjaldeyri til að leggja inn á reikninginn. Athygli er vakin á því að ekki er hægt að taka út gjaldeyri í erlendum seðlum nema framvísað sé farseðli og þá skal úttekt vera í samræmi við reglur SÍ.
Síðast uppfært: 15.september.2009 | Efst á síðu
Já, hægt er að leggja inn á reikninginn erlendan gjaldeyri en þó er ekki hægt að kaupa gjaldeyri til að leggja inn á hann.
Síðast uppfært: 15.september.2009 | Efst á síðu
Úttekt af gjaldeyrisreikningum er háð því skilyrði að sýnt sé fram á að notkun fjárins sé í samræmi við reglur Seðlabanka Íslands. Óheimilt er að taka út af gjaldeyrisreikningum reiðufé í erlendum seðlum, nema að um ferðamannagjaldeyri sé að ræða og þá er nauðsynlegt að viðskiptavinur framvísi farseðli. Óheimilt er að taka útaf gjaldeyrisreikningi í reiðufé til að greiða fyrir vöru og þjónustu. En hinsvegar er heimilt að taka út af gjaldeyrisreikningum til að greiða fyrir vöru og þjónstu sé gjaldeyririnn sendur í símgreiðslu í samræmi við vöru-og þjónustureikning. Framvísa þarf vöru-og þjónustureikning.
Síðast uppfært: 15.september.2009 | Efst á síðu
Já, sýna þarf farseðil við kaup ferðagjaldeyris. Einungis er afgreiddur gjaldeyrir í þeim mánuði sem brottför ferðar er. Sá sem kaupir gjaldeyrinn verður að vera sá sem stílaður er á farseðilinn. Óheimilt er að kaupa ferðamannagjaldeyri með seðlum. Hámarksupphæð sem viðskiptavi er heimilt að kaupa fyrir per farseðil per almanksmánuð er að andvirði ISK 350.000.
Síðast uppfært: 15.september.2009 | Efst á síðu
Nei, ekki er um slíkar takmarkanir að ræða.
Síðast uppfært: 15.september.2009 | Efst á síðu
Nei, en Byr tekur erlenda tékka til innheimtu. Slíkt innheimtuferli getur tekið allt að fjórar til átta vikur. Við viljum hins vegar benda á að mun skemmri tíma tekur að fá símgreiðslu auk þess sem um ódýrari kost er að ræða en slíkar greiðslur taka um tvo til fimm virka daga. Til að símgreiðslur taki sem stystan tíma er gott að senda greiðanda eftirfarandi upplýsingar:
- Fullt nafn reikningseiganda
- Viðskiptabanki reikningseiganda
- IBAN númer reikningseiganda (finna má það númer í heimabankanum eða fá það uppgefið hjá ráðgjafaveri Byrs)
- SWIFT kóða reikningseiganda (SWIFT kóði Byrs er BYRSISRE)
Síðast uppfært: 15.september.2009 | Efst á síðu
Nei, Byr gefur ekki út erlenda tékka. Hins vegar bjóðum við upp á símgreiðslur sem í mörgum tilfellum gæti talist betri kostur. Símgreiðslur eru öruggur og hagkvæmur kostur bæði í krónum og tíma. Allar símgreiðslur í dag eru afgreiddar svo framarlega sem þær uppfylla reglur Seðlabanka Íslands. Það tekur um tvo til fimm virka daga fyrir greiðsluna að berast inn á reikning viðtakanda.
Síðast uppfært: 16.september.2009 | Efst á síðu
