Greiðsluþjónusta
Greiðsluþjónustan er þægileg og örugg leið til að ná jafnvægi í fjármálum heimilisins.
Helstu kostir
- tímasparnaður
- enginn gluggapóstur
- engin vanskilagjöld
- engar biðraðir
- jöfn greiðslubyrði
- lægri seðilgjöld
Greiðsluþjónusta felur í sér eftirfarandi:
Greiðslujöfnun
Þjónustufulltrúi gerir greiðsluáætlun þar sem greiðslum er jafnað niður á 12 mánaða tímabil.
Beingreiðslur
Byr sér um að skuldfæra reikninga frá ákveðnum fyrirtækjum beint af reikningi þínum.
Stakar greiðslur
Á meðan þú er tímabundið fjarverandi eða í sumarfríi, getur Byr annast greiðslur einstakra reikninga, s.s hitaveitu, fjölmiðla og rafmagns.
Mánaðarlegar greiðslur
Ef greiðslur eru þær sömu í hverjum mánuði getur þú látið Byr sjá um að greiða reikningana fyrir þig.
