Erlendar ábyrgðir
Með bankaábyrgð minnkar þú áhættu þína
Bankaábyrgð tryggir hagsmuni bæði kaupanda og seljanda með því að gegna fjármögnunarhlutverki annars vegar og tryggingarhlutverki hins vegar.
Erlendar ábyrgðir
Ábyrgðir gegna mikilvægu hlutverki við að greiða fyrir viðskiptum. Vegna fjarlægðar við erlenda markaði eru ábyrgðir mikið notaðar hérlendis í viðskiptum við önnur lönd.
Byr býður viðskiptavinum sínum erlendar ábyrgðir vegna inn- og útflutnings (Letter of Credit) og bakábyrgðir/greiðsluábyrgð (Guarantee). Einnig bjóðum við upp á inn- og útflutningsinnheimtur (Import/Export Collection).
