Auðkennislyklar

Aukið öryggi í Fyrirtækjabankanum

Allir bankar og sparisjóðir landsins hafa nú sameinast um innleiðingu sérstakra auðkennislykla sem gera innskráningu í Fyrirtækjabankann á Netinu mun öruggari en fyrr.

Einn eigandi hvers lykils

Auðkennislyklarnir eru einföld tæki sem fjármálastjórar og aðrir sem aðgang hafa að fyrirtækjabanka fá einir til afnota. Auðkennislykillinn gefur eiganda sínum á augabragði nýtt auðkennisnúmer í hvert sinn sem hann skráir sig inn í bankann. Númerið verður því aldrei þefað upp af tölvuþrjótum og öryggi fyrirtækisins því tryggt í takt við nýjustu tækni og ströngustu kröfur sem unnt er að gera.

Öll fyrirtæki sem nota Fyrirtækjabankann fá auðkennislykla senda til sín í pósti. Til að fá nánari upplýsingar um auðkennislyklana getur sent okkur fyrirspurn , hringt í síma 575 4000 eða komist til okkar á næsta þjónustustað.

Stillingar