Pappírslaus viðskipti

Pappírslaus viðskipti: Frá 1. ágúst 2009 - Sparnaður í þína þágu
Sparaðu með pappírslausum viðskiptum

Frá og með mánaðarmótunum júlí/ágúst hætti Byr sparisjóður að senda út mánaðarleg yfirlit og greiðsluseðla í pósti til viðskiptavina. Öll yfirlit og greiðsluseðla má má finna á rafrænu formi í heimabanka Byrs.

Byr hætti að senda út eftirfarandi:

  • Reikningsyfirlit
  • Kreditkortayfirlit
  • Greiðsluseðla kreditkorta og lána

Öruggari og einfaldari samskipti

Yfirlitin birtast sem áður í fyrirtækjabankanum þínum. Pappírslaus viðskipti fela í sér bæði öruggari og einfaldari samskipti. Pósturinn skilar sér alltaf til þín í  fyrirtækjabankann sem aðeins þú hefur aðgang að. Ef þú ert ekki með fyrirtækjabanka getur þú sótt umsókn hér fyrir neðan, sem þú þarft að fylla út og koma með í næsta útibú Byrs. 

Sparnaður í þína þágu og umhverfisins

Þú sparar! Það er mikilvægt nú á tímum aukins aðhalds. Ekki spillir heldur fyrir að með þessu móti myndum við einnig umhverfisvænan sparnað (og minnkum póstinn sem kemur inn um bréfalúguna).

Hægt er að sækja um að fá heimsend yfirlit og greiðsluseðla á pappír hér fyrir neðan, í næsta útibúi Byrs eða með því að hringja í ráðgjafaver Byrs í síma 575 4000.

Stillingar