Innheimtuþjónusta

Byr býður viðskiptavinum sínum aukið hagræði og skilvirkara innheimtuferli með innheimtuþjónustu Byrs. Fari t.d. krafa í vanskil er hægt að reikna dráttarvexti frá gjalddaga og innheimta vanskilagjald. Að sama skapi getur fyrirtækið veitt afslátt af kröfum sé greitt fyrir gjalddaga og hvatt þannig viðskiptavini til að standa við settan greiðslufrest. Líkt og með vanskilaferlið er hægt að velja hverjir eiga að fá afslátt og hversu hár hann á að vera ásamt mörgu fleiru.

Innheimtuþjónusta hefur fjölmarga kosti umfram innheimtu með gíróseðlum

  • Vextir reiknast á kröfur ef óskað er
  • Mögulegt er að reikna staðgreiðsluafslátt
  • Sendar eru út ítrekanir ef kröfur eru ekki greiddar
  • Hægt að senda kröfur til vanskilainnheimtu

Tenging við bókhaldskerfi fyrirtækis þíns

Fyrir fyrirtæki er möguleiki á beintengingu í gegnum Netið við bókhaldskerfi fyrirtækisins þar sem kröfur eru sendar beint úr viðskiptamannabókhaldi í innheimtukerfi Byrs til skráningar og úrvinnslu.* Fyrirtækið getur síðan flutt skrár um greiddar kröfur yfir í viðskiptamannabókhald sitt og unnið úr þeim þar. Með þessu móti opnast ýmsir möguleikar fyrir fyrirtæki, til dæmis að prenta reikningsyfirlit á innheimtuseðilinn. Hægt er að velja um hvort greiðsluseðlar eru prentaðir út hjá fyrirtækinu eða hjá Byr.

* Athuga skal að ekki er hægt að tengja öll bókhaldskerfi, aðeins þau algengustu.

Láttu Byr annast innheimtuna

Fyrir fyrirtæki eða félög, sem ekki kjósa að vinna úr kröfum í viðskiptamannabókhaldi, getur Byr annast innheimtuna að öllu leyti. Innheimtubeiðni er afhent með lista yfir greiðendur eða á tölvutæku formi. Byr annast útsendingu á vörureikningum eða öðrum fylgiblöðum með kröfuseðlunum ef óskað er.

Stillingar