Lausnir fyrir fyrirtæki
Byr býður viðskiptavinum sínum fjölmörg úrræði vegna fjárhagslegrar endurskipulagningar fyrirtækja. Mikilvægt er að eigendur og stjórnendur hafi góða yfirsýn yfir fjárhagsstöðu og rekstrarhorfur fyrirtækja sinna áður en leitað er eftir aðstoð bankans vegna greiðsluerfiðleika. Í meðfylgjandi skjali er lýsing á þeim úrræðum sem Byr hf. býður uppá við fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja. Byr byggir allar ákvarðanir sínar um úrlausnir á greiðsluvanda fyrirtækja á vandlegri greiningu á fjárhagsstöðu fyrirtækis, viðskiptasögu og ítarlegri skoðun á greiðsluhæfi. Þá taka ákvarðanir í þessum efnum einnig mið af undirliggjandi áhættu og þeim tryggingum sem eru til staðar í hverju tilviki.
Samþykktar hafa verið sameiginlegar reglur um fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja á vettvangi Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF). Reglurnar hafa hlotið samþykki Fjármálaeftirlitsins með bréfi dagsett þann 2. mars 2010 eins og kveðið er á um í lögum nr. 107/2009. Í reglunum er kveðið á um hvaða þætti fjármálafyrirtæki skuli hafa til hliðsjónar við fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja. Byr hf. styðst við þessar reglur og gerir þá kröfu að fyrirtæki uppfylli þau skilyrði og skilmála sem þar eru settir fram. Hægt er að hlaða þessum reglum niður hér af síðunni.
Forsenda fjárhagslegrar endurskipulagningar
Með fjárhagslegri endurskipulagningu er átt við þegar endurskipulagning kann að leiða til eftirgjafar skulda eða annarra ívilnana frá gerðum samningum. Til að eiga kost á fjárhagslegri endurskipulagningu þarf fyrirtæki að uppfylla skilyrði í sameiginlegum reglum fjármálafyrirtækja um fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja. Meðal skilyrða sem þarf að uppfylla eru:
- Að endurheimtur krafna Byrs verði betri eftir endurskipulagningu á skuldum fyrirtækis en við upplausn þess að mati Byrs.
- Að traust og trúnaður ríki í viðskiptasambandi fyrirtækis við Byr hf., en í því sambandi er m.a. horft á viðskiptasögu fyrirtækis, eigenda þess og stjórnenda.
- Að áframhaldandi samstarf við eigendur og stjórnendur byggi á því að þeir þyki hafa fram að færa verðmæti er bæti endurheimtur Byrs.
- Að fyrirtæki sýni vilja til samvinnu og veiti Byr -. allar nauðsynlegar upplýsingar til að meta grundvöll fyrir fjárhagslegri endurskipulagningu.
Tengd skjöl
- Verklag Byrs vegna fjárhagslegrar endurskipulagningar á fyrirtækjum (PDF skjal 151KB)
- Sameiginlegar verklagsreglur um fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja (PDF skjal 34KB)
