Lausnir erlendra lána

Þau fyrirtæki sem tekið hafa erlend lán í gegnum Byr geta nú leitað eftir lækkun á greiðslubyrði að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Greiðslubyrði lánanna er þannig löguð að breyttum aðstæðum. Tekið er mið af greiðslubyrði láns eins og hún var 2. maí 2008.

Helstu upplýsingar

  • Tekið er mið af greiðslubyrði eins og hún var 2. maí 2008
  • Engin óvissa um mánaðarlega greiðslubyrði
  • Lán fylgja sömu skilmálum og áður
  • Hægt að segja upp hvenær sem er
  • Skilyrði er að lán sé í skilum

Fastgreiðsluleið felur í sér að samið er um fasta reglulega upphæð og lántakandi getur þar með gengið að greiðslubyrði lánsins sem vísri fram í tímann. Viðskiptavinum gefst kostur á að endurskoða fastgreiðsluupphæð með reglulegu millibili.

Áhrif á lán og lánstíma

Greiðslur inn á lánið verða bundnar við fyrsta skráða sölugengi greiðsludags. Sá munur sem myndast við þessa aðlögun á greiðslubyrði bætist við höfuðstól lánsins eða dregst frá honum, allt eftir gengisþróun íslensku krónunnar og við það lengist lánstíminn eða styttist.

Starfsmenn Byrs hvetja forsvarsmenn fyrirtækja til þess að leita upplýsinga hjá ráðgjöfum sparisjóðsins í næsta útibú.

Spurt og svarað

Með hækkandi gengi erlendra mynta hefur greiðslubyrði erlendra lána aukist verulega. Samhliða hefur kaupmáttur rýrnað og greiðslubyrði af erlendum lánum því þyngst hlutfallslega. Tilgangur þessarar lausnar er að bjóða lánshöfum leið til þess að létta greiðslubyrðina tímabundið eða þar til krónan styrkist á ný.

Síðast uppfært: 08.nóvember.2010  |  Efst á síðu

Lausnin felur á engan hátt í sér eftirgjöf á skuldum heldur er um að ræða frestun afborgana að hluta. Til lengri tíma litið, og að því gefnu að íslenska krónan styrkist ekki verulega leiða fastar greiðslur til aukins kostnaðar í formi vaxta og því er ekki sjálfgefið að fólk kjósi eða hafi hag af föstum greiðslum. Hver og einn þarf að skoða þetta í ljósi aðstæðna sinna og taka ákvörðun í samræmi við það.

Síðast uppfært: 08.nóvember.2010  |  Efst á síðu

Þau fyrirtæki sem tekið hafa erlend lán í gegnum Byr geta leitað eftir föstum greiðslum að ákveðnum skilyrðum uppfylltum en hvert tilfelli er metið hverju sinni af viðskiptastjórum og ráðgjöfum fyrirtækja. Skilyrði er að lánið sé ekki í vanskilum en ef svo er, skoðum við málin með þér og metum hvað best er að gera í stöðunni.

Síðast uppfært: 08.nóvember.2010  |  Efst á síðu

Það eina sem þú þarft að gera er að koma í næsta útibú Byrs og tala við einn af ráðgjöfum fyrirtækja eða viðskiptastjóra. Saman farið þið yfir málin og finnið út hvort önnur hvor leiðin henti þínu fyrirtæki. Beiðni þarf að berast eigi síðar en 15 dögum fyrir gjalddaga eigi hún að koma til framkvæmda þá. Berist beiðnin eftir þann tíma skulu breytingarnar koma til framkvæmda á næsta gjalddaga þar á eftir.

Síðast uppfært: 08.nóvember.2010  |  Efst á síðu

Fastgreiðsluleiðin á einungis við um erlend lán.

Síðast uppfært: 08.nóvember.2010  |  Efst á síðu

Já. Skilyrði fyrir slíkri breytingu er að lánið sé í fullum skilum. Samið skal um hvort skuld vegna mismunar á gjalddagafjárhæð og greiðslumarki greiðist á upphaflegum lánstíma eða hvort lánstíminn er lengdur. Ef krónan hefur styrkst verulega gagnvart erlendum myntum gæti borgað sig að segja upp föstum greiðslum til þess að minnka mánaðarlega greiðslubyrði. Sækja þarf sérstaklega og skriflega um niðurfellingu.

Síðast uppfært: 08.nóvember.2010  |  Efst á síðu

Sé föst greiðsla lægri en gjalddagafjárhæð greiðir lántaki einungis fjárhæð sem samsvarar fastri greiðslu. Greiðsla á ógreiddum hluta gjalddagafjárhæðar (gjalddagi – föst greiðsla) er frestað og bætist við höfuðstól lánsins og kemur þannig til lengingar lánstíma.

Síðast uppfært: 08.nóvember.2010  |  Efst á síðu

Hægt er að velja um að fastgreiðsluleið taki þegar gildi, eða að framkvæmdin komi strax að frystingu lokinni.

Síðast uppfært: 08.nóvember.2010  |  Efst á síðu

    

Stillingar