Byr starfrækir hraðbanka víða á sínu starfsvæði. Viðskiptavinir Byrs geta tekið allt að 30.000 kr. á sólarhring út úr hraðbönkunum, en viðskiptavinir annara fjármálafyrirtækja geta tekið út allt að 15.000 kr. á sólarhring.

Helstu kostir

  • Hægt er að taka út peninga af debet- og kreditkortareikningum
  • Hægt er að fá yfirlit af debetkortareikningum
  • Hægt er að millifæra af debetkortareikningi inn á alla reikninga 

Gagnlegar ábendingar

  • Hafðu kortið tilbúið þegar röðin kemur að þér, ekki fara að leita að því þá
  • Byrgðu sýn annarra þegar þú slærð inn PIN-númerið og þegar þú tekur við peningum
  • Í sumum tilvikum getur verið betra að stinga korti og peningum strax á sig og telja þá seinna á öruggum stað
  • Við notkun á hraðbanka í lokuðu rými notar þú kortið til að opna en athugaðu að einhver getur fylgt þér inn þegar opnað er
  • Fáðu uppgefið hjá Byr eða kortafyrirtækinu hver er hámarksúttekt á dag
  • Víða erlendis hefur þú val um nokkur tungumál við afgreiðslu úr hraðbönkum

Nokkur ráð varðandi notkun á greiðslukortum

  • Gættu þess að rispa ekki né beygja kortið
  • Geymdu kortið á öruggum stað
  • Leggðu PIN-númerið á minnið
  • Gefðu aldrei öðrum upp PIN-númerið og geymdu það aldrei með eða hjá kortinu sjálfu
  • Geymdu allar kvittanir af kortanótum og berðu þær saman við úttektaryfirlit
  • Tilkynntu strax til sparisjóðs eða til kortafyrirtækis um glatað eða stolið kort

Staðsetningar hraðbanka Byrs

Stillingar