Um Byr
Við aðstoðum viðskiptavini okkar við að ná markmiðum sínum með því að bjóða lausnir í fjármálum sem eru sniðnar að þörfum einstaklinga, fjölskyldna og fyrirtækja.
Sérstaða okkar byggist á persónulegri þjónustu, stuttum boðleiðum og dreifðri ákvarðanatöku.
Við ætlum að vera
- Öflugt og vel rekið fjármálafyrirtæki
- Þekkt fyrir persónulega þjónustu
- Eftirsóttur vinnustaður, þar sem er stolt og sterk liðsheild
- Ábyrgur þátttakandi í nánasta samfélagi okkar
Byr starfar eftir lögum um fjármálafyrirtæki nr. 161/2002. Eftirlitsaðili á íslenskum fjármálamarkaði er Fjármálaeftirlitið.
