Fréttir


Íslandsbanki sameinast Byr í Hraunbæ

Útibú Byrs í Hraunbæ opnar í dag undir merkjum Íslandsbanka. Um helgina var unnið að sameiningu kerfa útibúsins við Íslandsbanka auk þess útliti þess var breytt og teknir upp litir og merki íslandsbanka. Útibússtjóri Íslandsbanka í Hraunbæ er Ylfa Proppé Einarsdóttir.

Meira | Skrifað þann 30. janúar 2012



Byr og Íslandsbanki sameinast í Reyjanesbæ og Kópavogi

Mánudaginn 16. janúar sameinaðist útibú Byrs og Íslandsbanka í Reykjanesbæ og voru þar með fyrstu útibú bankanna sem sameinast. Sameining tölvukerfa bankanna fór fram um helgina 14. og 15 janúar og gekk vonum framar og var leyst fljótt og vel úr þeim fáu hnökrum sem upp komu gagnvart viðskiptavinum.

Meira | Skrifað þann 19. janúar 2012



Reikningar sparisjóða ekki lengur aðgengilegir í heima- og fyrirtækjabanka Byrs

Með sameiningu Íslandsbanka og Byrs er bankinn ekki lengur hluti af sparisjóðakerfinu. Íslandsbanki má því hvorki birta reikninga né kreditkort frá sparisjóðum í sínum kerfum, auk þess sem aðrir sparisjóðir mega ekki birta reikninga né kreditkort frá Íslandsbanka í sínum kerfum eða heimabönkum. Þá er ekki lengur hægt að skoða yfirlit yfir reikninga frá sparisjóðum eins og áður hefur verið.

Meira | Skrifað þann 18. janúar 2012



Staðgreiðsla af gengishagnaði innlánsreikninga í erlendri mynt

Frá og með 1. janúar 2012 verður tekin staðgreiðsla fjármagnstekjuskatts af gengishagnaði innlánsreikninga í erlendri mynt með vísun í 2. grein laga nr. 128/2009 um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur. Þetta á við um innlánsreikninga í eigu einstaklinga sem eru skattskyldir. Ekki verður tekinn staðgreiðsluskattur af reikningum í eigu lögaðila.

Meira | Skrifað þann 02. janúar 2012



Afgreiðslutími útibúa yfir hátíðarnar

Útibú Byrs eru lokuð á morgun, aðfangadag. Þau opna aftur þriðjudaginn 27. desember og eru opin til 30. desember. Útibúin opna svo klukkan 13 mánudaginn 2. janúar.

Meira | Skrifað þann 23. desember 2011



Frádráttarbært iðgjald lækkar úr 4% í 2%

Alþingi samþykkti í desember 2011 að breyta tekjuskattslögum á þann veg að heimild til frádráttar iðgjalda í viðbótarlífeyrissparnað frá tekjuskattsstofni verði 2% í stað 4%.  Lækkunin gildir á árunum 2012 til 2014.

Meira | Skrifað þann 21. desember 2011



Spurt og svarað um verðbréfasjóði, eignastýringu og lífeyrisþjónustu Byrs

Við sameiningu Byrs og Íslandsbanka mun verðbréfaþjónusta og eignastýringarþjónusta Byrs ásamt lífeyrisþjónustu Byrs færast yfir til VÍB, eignastýringarþjónustu Íslandsbanka. Stefnt er að því að sameina verðbréfasjóði Byrs við verðbréfasjóði Íslandssjóða. Hér fyrir neðan eru svör við algengum spurningum sem vakna vegna þessarar sameiningar.

Meira | Skrifað þann 13. desember 2011



Sameining Íslandsbanka og Byrs hf. samþykkt

Alþingi hefur samþykkt sölu á hlut ríkisins í Byr hf. til Íslandsbanka og allri samningagerð er nú lokið. Með því er ljóst að Íslandsbanki og Byr munu sameinast, en áður höfðu Fjármálaeftirlit, Samkeppniseftirlitið og Eftirlitsstofnun EFTA veitt samþykki sitt fyrir kaupunum. Íslandsbanki kaupir 11,8% hlut íslenska ríkisins og 88,2% hlut skilanefndar Byrs á 6,6 milljarða króna.

Meira | Skrifað þann 24. nóvember 2011



Alþingi samþykkir kaup Íslandsbanka á Byr

Alþingi samþykkti í dag fjáraukalög og þar með sölu á eignarhlut ríkisins í Byr hf. til Íslandsbanka. Nú er unnið að lokafrágangi sem fylgir slíkri lagasetningu og þeirri skjalagerð sem fylgir kaupunum. Gert er ráð fyrir að þeirri vinnu muni ljúka á næstu dögum.

Meira | Skrifað þann 17. nóvember 2011


Næsta síða

Stillingar