Mannauður

Einn af áhersluþáttunum í starfsemi fyrirtækisins er að Byr sé góður og eftirsóttur vinnustaður.

Mikið er því lagt upp úr að laða að, efla og halda hæfu og traustu starfsfólki. Einnig er mikil áhersla lögð á að starfsfólk sé vel upplýst um stefnu og framtiðarsýn og skal hver og einn starfsmaður setja sér starfstengd markmið sem styðja við heildarmarkmið fyrirtækisins.

Frammistaða er metin og rædd reglulega og mikið lagt upp úr því að samvinna sé góð og að allir stefni að sama marki og átti sig á sínu framlagi til heildarárangurs fyrirtækisins.

Starfsfólki bjóðast góð tækifæri til að viðhalda og auka þekkingu sína og þróast í starfi innan Byrs.

Stillingar