Starfsmannastefna og gildi
Starfsmannastefna Byrs byggir á grunni laga, reglna, gilda og fleiri þátta í starfsemi fyrirtækisins. Hún hefur það að markmiði að tryggja að öll svið Byrs sinni mannauðsmálum sem best og í samræmi hvert við annað. Einnig að hlúa vel að starfsfólki og auka möguleika þess til að ná árangri, bæði í starfi og einkalífi.
Í stuttu máli þá segir starfsmannastefna Byrs að:
- Ráðningar skulu byggja á faglegum forsendum og taka mið af stefnu Byrs og gildum.
- Byr býður upp á samkeppnishæf kjör sem taka meðal annars mið af ábyrgð og frammistöðu.
- Hjá Byr er markvisst unnið að því að skapa heilbrigt og hvetjandi starfsumhverfi með dreifðri ábyrgð þar sem starfsfólk er hvatt til að taka faglegar og sjálfstæðar ákvarðanir, með tilliti til verkefnaskipulags og verklagsreglna
- Mikið er lagt upp úr að starfsfólk hafi vilja til að taka framförum og vaxa í starfi hjá Byr og er starfsþróun hvers starfsmanns sameiginlega á ábyrgð hans og fyrirtækisins.
- Byr leggur áherslu á gott upplýsingastreymi og að stefna og markmið fyrirtækisins séu öllu starfsfólki ljós.
Gildi Byrs eru: Virðing, liðsheild og skilvirkni
- Virðing: Við sýnum umhyggju, jákvæðni og þjónustulipurð sem henta viðskiptavinum og samstarfsfólki.
- Liðsheild: Við sýnum traust, heiðarleika og ábyrgð í starfi.
- Skilvirkni: Við sýnum metnað, skoðum nýjar leiðir og höfum hagsýni að leiðarljósi.
Þjónustumarkmið og gildi fyrirtækisins leggja grunninn að þeim þjónustubrag sem mótast hefur gegnum árin. Með því að setja markmiðin fram á hvetjandi hátt er höfðað til starfsfólks að sýna frumkvæði allt frá því að viðskiptavinir komast í samband við Byr og þar til mál þeirra hafa verið leyst. Það geta verið mörg atriði, smá sem stór sem þarf að leysa. Þessar þjónustuáherslur byggjast á áratuga reynslu og hefur mikil áhersla verið lögð á að varðveita þann þjónustuanda sem Byr hefur verið þekktur fyrir í gegnum árin.
