Styrktarverkefni
Byr er virkur þátttakandi í íslensku samfélagi og leggur áherslu á að styrkja góð og uppbyggileg verkefni sem stuðla að heilbrigðum lífsstíl allra aldurshópa.
Megináhersla er lögð á ungu kynslóðina og málefni er efla fjárhagslega heilsu allra.
Andrés Andar leikarnir
Byr hefur hefur stutt við Andrésar Anda leikana í 3 ár og hafa þeir ávallt verið vel sóttir af skíðafólki alls staðar af landinu.
Heimasíða styrkþega
Félag eldri borgara í Garðabæ
Byr hefur á undanförnum árum stutt félagsstarf eldri borgara í Garðabæ. Byr mun halda upplýsingafundi fyrir félagsmenn um fjármál og efnahagsmál, þar sem lögð er áhersla á þá þætti sem skipta eldri borgara mestu máli miðað við ástand mála í dag auk styrk á innra starfi félagsins.
Heimasíða styrkþega
Félag eldri borgara í Hafnarfirði
Byr hefur styrkt starf félag eldri borgara um áraraðir, þetta félag er elsta hagsmunafélag eldri borgara hér á landi sem var stofnað fyrir réttum fjórum áratugum hér í Hafnarfirði, mikið félagsstarf er hjá þessum heiðursborgurum/göflurum.
Heimasíða styrkþega
Félag eldri borgara í Kópavogi
Byr styrkir það starf sem fer fram hjá félaginu og hefur gert það frá árinu 2006. Meðal annars sér Byr um upplýsingafundi fyrir félagsmenn um fjármál og efnahagsmál . Félagið var stofnað í nóvember 1988 og er opið öllum 60 ára og eldri.
Heimasíða styrkþega
FH
Byr er aðalstyrktaraðili Handknattleiksdeildar FH og hefur verið það í gegnum árin og áratugina, það skal engum undra að Hafnarfjörður sé oft nefndur "Handboltabærinn" Mikið barna og unglingastarf er hjá félaginu sem er mikilvægt fyrir hafnfirska æsku.
Heimasíða styrkþega
Fimleikafélagið Björk
Byr hefur verið aðalstyrktaraðili félagsins um árabil. Fimleikadeildin hefur það að markmiði sínu að sem flestir geti stundað fimleika við sitt hæfi hvort sem valið er að stunda fimleika sem keppnis- og afreksíþrótt eða sem líkamsrækt og vegna félagsskapsins.
Heimasíða styrkþega
Fylkir
Byr er aðalstyrktaraðili knattspyrnudeild Fylkis. Samstarfsamningurinn felur í sér stuðning við alla flokka karla og kvenna. Byr hefur í hartnær 20 ár stutt við starf félagsins.
Heimasíða styrkþega
Golfklúbburinn Keilir
Byr er aðalstyrktaraðili Keilis um langt árabil. Meðal árlegra samstarfsverkefna má nefna opna Byr golfmótið sem staðið hefur óslitið á Hvaleyrar vellinum frá árinu 1992.
Heimasíða styrkþega
Handboltafélag Akureyrar
Byr hefur styrkt félagið frá upphafi. Handboltafélagið er sameinuð handboltadeild KA og Þórs.
Heimasíða styrkþega
Haukar
Um árabil hefur Byr verið aðalstyrktaraðili meistaraflokks kvenna og karla í handbolta sem hefur gefið félaginu góðan meðbyr, ekki hefur árangurinn látið á sér standa undanfarin ár hjá félaginu sem er sértaklega ánægjulegt þar sem Haukar hafa orðið íslandsmeistarar oftar en einu sinni.
Heimasíða styrkþega
HK
Byr styrkir allar deildir innann HK, sérstaklega með hliðsjón af barna- og unglingastarfi þess en styrkir jafnframt alla meistaraflokkana líka. Samstarfið hefur verið allt frá árinu 1998 þegar fyrsti samningurinn var gerður á milli Byrs og HK.
Heimasíða styrkþega
Jakob Jóhann Sveinsson, sundmaður
Byr styrkir sundmanninn Jakob Jóhann Sveinsson en skrifað var undir 18 mánaða samstarfssamning í febrúar 2011. Jakob æfir hjá Sundfélaginu Ægi og stefnir að sínum fjórðu ólympíuleikum í London árið 2011.
Pro Golf
Byr er aðalstyrktaraðili Pro Golf en fyrirtækið er leiðandi á sviði golfkennslu á Íslandi og sér um alla unglinga- og afrekskennslu fyrir Golfklúbb Reykjavíkur ásamt því að kenna miklum fjölda barna og unglinga, óháð golfklúbbum.
Heimasíða styrkþega
Stjarnan
Byr hefur verið aðalstyrktaraðili barna-og unglingastarfi Stjörnunnar í knattspyrnu um tíma.
Heimasíða styrkþega
Þór
Byr er aðalstyrktaraðili Körfuknattleiksleikdeildar Þórs síðan 2006 og aðalstyrktaraðili knattspyrnudeild Þórs síðan árið 2004.
Heimasíða styrkþega
