Jón Finnbogason, forstjóri Byrs og framkvæmdastjóri Viðskiptasviðs

Jón hóf störf á lögfræðisviði fyrirtækisins í janúar 2009. Þar starfaði hann þar til í nóvember sama ár, þegar hann tók við sem sparisjóðsstjóri. Áður hefur Jón starfað hjá Rekstrarfélagi Kaupþings banka þar sem hann bar ábyrgð á ýmsum samsettum sjóðum. Jón útskrifaðist sem lögfræðingur frá Háskóla Íslands árið 1998, er kvæntur Lindu Björk Logadóttur og eiga þau saman fimm börn.


Herdís Pála Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Þróunar og rekstrar

Herdís Pála var fyrsti starfsmaðurinn sem ráðinn var inn hjá Byr sparisjóði eftir sameiningu Sparisjóðs vélstjóra og Sparisjóðs Hafnarfjarðar en hún hefur starfað hjá fyrirtækinu frá desember 2006. Áður hefur hún meðal annars starfað í fimm ár í starfsmannamálum hjá Íslandsbanka, þar sem hún hóf störf í apríl 2002. Herdís útskrifaðist með MBA gráðu með áherslu á mannauðsstjórnun frá University of New Haven árið 2000 en hafði áður lokið B.Ed frá Kennaraháskóla Íslands árið 1994. Herdís er gift Jóni Ágústi Sigurðssyni, kerfisstjóra hjá Arion banka og eiga þau þrjá syni.

Regína Fanný Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Fjármálasviðs

Regína Fanný Guðmundsdóttir hóf störf hjá Sparisjóði vélstjóra, forvera Byrs árið 2005 og hefur því starfað í tæp fimm og hálft ár hjá fyrirtækinu. Áður starfaði hún sem sumarstarfsmaður í Landsbanka Íslands á árunum 1986-1993. Þá gegndi hún starfi útibússtjóra hjá Landsbankanum á Djúpavogi um fjögurra ára skeið, frá árinu 1996. Regína er með kandídatspróf í viðskiptafræði frá endurskoðunarsviði HÍ frá árinu 1994 og lauk löggildingu í janúar 2006. Regína er í sambúð með Guðmundi Sveinbjörnssyni, framkvæmdastjóra og eiga þau fjögur börn.

Björn Björnsson, framkvæmdastjóri Áhættustýringar

Björn hefur starfað hjá Byr frá janúar 2010, fyrst sem aðstoðarmaður forstjóra en hefur nú tekið við framkvæmdastjórn áhættustýringar. Björn starfaði í áhættustýringu Kaupþings á árunum 2005 og 2006 og áhættustýringu Exista frá 2006 til 2010. Þá hefur Björn sinnt kennslu og rannsóknum við HÍ. Björn lauk BA gráðu í tölvunarfræði frá HÍ árið 2003 og mastersgráðu í iðnaðarverkfræði frá sama skóla árið 2006.



Stillingar