Þann 22. apríl 2010 fór stjórn Byrs sparisjóðs (kt. 610269-2229) fram á að Fjármálaeftirlitið (FME) taki yfir starfsemi sparisjóðsins. Var það í kjölfar þess að samningaviðræðum við kröfuhafa lauk án árangurs.
Á grundvelli VI. ákvæðis til bráðabirgða í lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, samanber IV. ákvæði til bráðabirgða í lögum nr. 44/2009 um breytingar á lögum um fjármálafyrirtæki, er FME meðal annars fengnar heimildir til að grípa til sérstakra ráðstafana, vegna sérstakra aðstæðna eða atvika, í því skyni að takmarka tjón eða hættu á tjóni á fjármálamarkaði. Meti FME það svo að aðstæður séu mjög knýjandi getur það tekið yfir vald fundar stofnfjáreigenda í því skyni að taka ákvarðanir um nauðsynlegar aðgerðir, þar á meðal að takmarka ákvörðunarvald stjórnar, víkja stjórn frá að hluta til eða í heild sinni og skipa bráðabirgðastjórn, taka yfir eignir, réttindi og skyldur fjármálafyrirtækis í heild eða að hluta eða ráðstafa slíku fyrirtæki í heild eða að hluta, meðal annars með samruna þess við annað fjármálafyrirtæki.
Í ákvörðun FME um ráðstöfun eigna og skulda kemur fram að innlán og eignir sparisjóðsins hafa verið fluttar til nýs viðskiptabanka, Byrs hf. (kt. 620410-0200). Sá banki er að fullu í eigu íslenska ríkisins.
Nánari upplýsingar
- Frétt FME (23. apríl 2010)
- Frétt Fjármálaráðuneytisins (23. apríl 2010)
- Ákvörðun FME um ráðstöfun eigna og skulda (22. apríl 2010)
- Fréttatilkynning frá efnahags- og viðskiptaráðuneytinu um tryggingu innistæðna (9. apríl 2010)
Disclaimer: This information is for informational purposes only and shall not be made legally binding towards Byr Savings Bank, its Winding-up Committee of Byr hf. Please note the terms of the general disclaimer governing use of this website and the information contained on the website.
