Þann 22. apríl 2010 skipaði Fjármálaeftirlitið (FME) þriggja manna bráðabirgðastjórn yfir Byr sparisjóð (kt. 610269-2229). Var það gert með vísan til VI. ákvæðis til bráðabirgða og 100. gr. a laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, eins og þeim var breytt með lögum nr. 44/2009. Fer hún ein með sömu heimildir að lögum og eftir samþykktum sparisjóðsins og stjórn og fundur stofnfjáreigenda hefði ella haft á hendi, samanber þó 4. tl. 2. mgr. 101. gr. laganna.

Bráðabirgðastjórn Byrs sparisjóðs

  • Eva Bryndís Helgadóttir, hrl., formaður.
  • Ágúst Kristinsson, löggiltur endurskoðandi.
  • Árni Ármann Árnason, hrl.

Bráðabirgðastjórn skal svo fljótt sem verða má gera nauðsynlegar ráðstafanir til að fá yfirsýn yfir fjárhag Byrs sparisjóðs. Á meðan bráðabirgðastjórn ræður yfir sparisjóðnum gilda sömu takmarkanir á heimildum til að beita fullnustuaðgerðum og öðrum þvingunarúrræðum gagnvart honum og ef sparisjóðurinn hefði fengið heimild til greiðslustöðvunar. Skal bráðabirgðastjórn því aðeins gera ráðstafanir um meiriháttar hagsmuni sparisjóðsins að brýna nauðsyn beri til.

Fjármálaeftirlitið bendir á að yfirráðum bráðabirgðastjórnar yfir Byr sparisjóði lýkur sjálfkrafa þegar liðnir eru þrír mánuðir frá skipun hennar, nema þær undantekningar sem tilgreindar eru í 1.-3. tl. 3. mgr. 100. gr. a. laga nr. 161/2002 komi til. Ljúki yfirráðum bráðabirgðastjórnar yfir sparisjóðnum sjálfkrafa með því að starfstími hennar er á enda án þess að hann hafi verið tekinn til slita verður starfsleyfi sparisjóðsins afturkallað þá þegar hafi honum ekki verið kjörin ný stjórn, sbr. 4. mgr. 100. gr. a laga nr. 161/2002.

Bráðabirgðastjórn er hægt að nálgast með tölvupósti (bradabirgdastjórn@byr.is) eða bréfi til:

Bráðabirgðastjórn Byrs sparisjóðs
Borgartúni 18
105 Reykjavík

Hlutverki bráðabirgðastjórn lauk 2. júlí 2010 þegar sparisjóðnum var skipuð slitastjórn.

Disclaimer: This information is for informational purposes only and shall not be made legally binding towards Byr Savings Bank, its Winding-up Committee of Byr hf. Please note the terms of the general disclaimer governing use of this website and the information contained on the website.

Stillingar